Fara í efni

Hafnarstjórn

60. fundur
30. júní 2009 kl. 17:00 - 19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Hrognalögn
Málsnúmer 0906007
Hafnarstjórn hefur áður fjallað um verkefnið, en framkvæmdir eru hafnar. Málið kynnt.
2.
Þjónustumiðstöð fyrir olíurannsóknir og vinnslu
Málsnúmer 0906022
Málið kynnt.
3.
Framkvæmdir við safnahúsið á Norðfirði
Málsnúmer 0905162
Nokkur umræða varð um málið. Hafnarstjórn hefur ekki breytt skoðun sinni, en gerir ekki ágreining um málið.
4.
Umsókn um styrk vegna Sjómannadagshátíðar á Eskifirði
Málsnúmer 0906005
Hafnarstjórn samþykkir að veita viðbótarstyrk til sjómannadagsráða Eskifjarðar og Norðfjarðar að upphæð 50.000 kr. til hvors ráðs.
5.
730,Hraun 6,Iðnaðarhús
Málsnúmer 0906021
Leitað hefur verið umsagnar frá Alcoa Fjarðaáli í samræmi við samning þar um og gera þeir ekki athugasemdir við úthlutun lóðarinnar.  Hafnarstjórn samþykkir að úthluta lóð nr. 6 til Vélaverkstæðis Hjalta Einarssonar ehf.
6.
Upptökumannvirki fyrir smábáta á Eskifirði
Málsnúmer 0903094
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir málinu og stöðu þess.
Umræður fóru fram um þjónustu á höfnunum sérstaklega í tengslum við þær breytingar sem munu eiga sér stað með tilkomu strandveiða. Í þessu sambandi var sérstaklega rætt um höfnina á Stöðvarfirði. Framkvædastjóra falið að ræða við útgerðarmenn á Stöðvarfirði.