Fara í efni

Hafnarstjórn

62. fundur
8. september 2009 kl. 17:00 - 19:00
í Hafnarhúsinu Eskifirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Hafnafundur 2009 18.september nk.
Málsnúmer 0908068
Tilkynning til aðildarhafna Hafnasambands Íslands um hafnafund í Fjarðabyggð 18. september 2009. Kynnt.
2.
Kynningarmál vegna skemmtiferðaskipa
Málsnúmer 0904081
Farið var yfir stöðu mála og fyrirliggjandi drög að kynningarbæklingi fyrir skemmtiferðaskip.  Ferða og menningarfulltrúi Fjarðarbyggðar fer á kaupstefnu skemmtiferðaskipa í Hamborg í næstu viku.
3.
Minnisblað vegna umræðu á fundi hafnarstjórnar 30.júní 2009
Málsnúmer 0909014
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir málinu.  Hafnarstjórn fól honum að láta skoða skipulag smábátahafnanna.
4.
Smábátahöfnin á Stöðvarfirði
Málsnúmer 0907037
Bréfið kynnt, en búið er að bregðast við því er varðar uppsetningu bryggjustiga við gamla kantinn. Annað kallar á öllu meira fjármagn og verður skoðað í framhaldinu.
5.
Umsókn um leyfi fyrir uppsátur og geymsluskýli sem tengist sportbátaútgerð
Málsnúmer 0907078
Hafnarstjórn vísar erindinu til umsagnar hjá umhverfis og skipulagssviði.
6.
Umsögn vegna umferðaöryggis við Barkan
Málsnúmer 0909013
Framkvæmdastjóri fór yfir umsögn vinnuhóps um mat á umferðaröryggi vega.  Kynnt var fyrir hafnarstjórn útboðslýsing fyrir fyrsta áfanga Barksins og minniháttar breytingar frá fyrri teikningum.
7.
Upptökumannvirki fyrir smábáta á Eskifirði
Málsnúmer 0903094
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu mála og hugmynd um skipulag á lóðinni. Hafnarstjórn samþykkir tillöguna.
8.
Rannsóknarverkefni um sjóflutninga
Málsnúmer 0909021
Framkvæmdastjóri greindi frá því að fulltrúi frá vinnuhópnum hefði verið hér að kynna sér aðstæður á svæðinu.