Hafnarstjórn
Efni: Tillaga um breytingar á leyfum til dragnótaveiða í Eskifirði og Reyðarfirði.<?xml:namespace prefix = o />
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að framkvæmdastjóra Fjarðabyggðahafna verði falið að ræða við Sjávarútvegsráðuneytið og / eða Fiskistofu um breytingar á leyfum til dragnótaveiða í Eskifirði og Reyðarfirði. Leggjum við til að Eskifjörður og Reyðarfjörður verði opnaðir fyrir dragnótaveiðum, báta allt að 12.br.tonn, frá og með 16.maí til 31.janúar samanber nærliggjandi firði.
Greinargerð:
Á Eskifirði eru dragnótaveiðar bannaðar allt árið innan línu, sem dregin er milli Mjóeyrar og Skeleyrar.
Á Reyðarfirði eru dragnótaveiðar bannaðar allt árið innan línu, sem dregin er frá Ljós í Handarhald, sunnan fjarðarins.
Eftir sem áður yrðu Reyðarfjörður og Eskifjörður lokaðir dragnótaveiðum frá og með 1.febrúar til og með 15.maí innan línu sem dregin er réttvísandi norður frá Vattarnesvita en opnir utan þess tímabils.
Hafnarstjórn ræddi tillöguna en vísar henni til bæjarráðs til nánari umfjöllunar og ákvörðunar.