Fara í efni

Hafnarstjórn

100. fundur
18. júní 2012 kl. 17:00 - 19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Styrkbeiðni 2012 - Sjómannadagurinn
Málsnúmer 1205126
Erindi frá 24. maí 2012 þar sem Sjómannadagsráð Neskaupstaðar óskar eftir styrk vegna sjómannadagshátíðarhalda.  Hafnarstjórn samþykkti styrkbeiðnina.
2.
Styrkbeiðni 2012
Málsnúmer 1205141
Erindi frá 29. maí 2012 þar sem Sjómannadagsráð Eskifjarðar óskar eftir styrk vegna sjómannadagshátíðarhalda. Hafnarstjórn samþykkti styrkbeiðnina.
3.
Smábátahöfn Eskifirði
Málsnúmer 0910146
Fundargerð frá opnun tilboða í yfirborðsfrágang við smábátahöfnina á Eskifirði sem opnað var 31. maí 2012.  Hafnarstjórn samþykkti að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
4.
730 Fjarðabyggð, Ægisgata 6
Málsnúmer 1103085
Erindi vísað til ákvörðunar hjá hafnarstjórn frá bæjarráðsfundi 18. júní 2012 er varðar kaup á húseignunum að Ægisgötu 6, en bæjarráð samþykkti fyrirliggjandi drög fyrir sitt leyti.  Framlögð drög að kaupsamningi milli Fjarðabyggðar og Machinery ehf. vegna kaupa Fjarðabyggðar á fasteignum að Ægisgötu 6 Reyðarfirði, landnúmer194-840 og fastanúmer 217-7483 að frátalinni 2.600 fermetra lóð eignarinnar, auk draga að yfirlýsingu um kauprétt Fjarðabyggðar að Hafnargötu 6 Reyðarfirði, landnúmer 158-477 og fastanúmer 217-746.  Hafnarstjórn samþykkir kaup á eignunum til niðurrifs í samræmi við fyrirliggjandi drög að kaupsamningi.  Ákvörðuninni er vísað til umfjöllunar og staðfestingar bæjarstjórnar ásamt viðauka við fjárhagsáætlun 2012.
5.
Hafnarmál á Norðfirði
Málsnúmer 1111028
Umfjöllun um endurskipulagningu og stækkun Norðfjarðarhafnar. Fyrir fundinum lá minnisblað frá fundi með notendum hafnarinnar í Safnahúsinu á Norðfirði 1. júní 2012 auk skýrslu Siglingastofnunar þar sem settar eru fram hugmyndir að stækkun, kostnaðarmati og tímaplani. Hafnarstjórn samþykkir að fara í framkvæmdir við stækkun Norðfjarðarhafnar í samræmi við tillögu 3 með framtíðarsýn 1. Framkvæmdastjóra falið að afla nánari upplýsinga um áætlaðan kostnað sem tilfellur á árinu.  Ákvörðuninni er vísað til umfjöllunar og staðfestingar bæjarstjórnar ásamt viðauka við fjárhagsáætlun 2012.
Lagt fram minnisblað dags. 15. júní 2012 um Fjarðabyggðarhafnir unnið af KPMG.