Hafnarstjórn
101. fundur
10. júlí 2012
kl.
17:00
-
19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson
Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Aðalfundaboð Fiskmarkaðs Austurlands 30.maí 2012 , ársreikningur 2011
Fundargerð frá aðalfundi Fiskmarkaðar Austurlands frá 31. maí 2012 ásamt ársreikningi félagsins. Kynnt.
2.
Aðalfundur Cruise Iceland 25. maí 2012, ársreiknigur og skýrsla 2011
Fundargerð frá aðalfundi Cruise Iceland frá 25. maí 2012 ásamt ársreikningi félagsins. Kynnt.
Þennan lið fundarins sat Björn Ingi Knútsson og fór yfir markaðsmál hafnarinnar. Birni var þökkuð koman og yfirgaf hann síðan fundinn.
3.
Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 347 frá 20. júní 2012. Kynnt.
4.
Beiðni um undanþágu vegna lóðstöku í Reyðarfirði - M/S El Toro
Erindi frá Samskipum dags. 19. júní 2012 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Andrej Kudriasov skipstjóra á El Toro að og frá Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsöguskyldu fyrir Andrej Kudriasov skipstjóra á mv. El Toro.
5.
Fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016
Bréf frá Siglingastofnun dags. 29. júní 2012 vegna fjögurra ára samgönguáætlunar 2013 til 2016. Framkvæmdastjóra falið að sækja um í samgönguáætlun vegna frumrannsókna vegna tveggja verkefna og eins vegna grjótvarna.
6.
Innkaupareglur Fjarðabyggðar
Framlögð drög að innkaupareglum ásamt minnisblaði fjármálastjóra frá 11.maí. sem kynnt voru á fundi bæjarráðs 18. júní 2012. Bæjarráð vísar drögum að innkaupareglum til umfjöllunar hjá sviðsstjórum og viðeigandi fastanefndum. Bæjarráð mun taka reglurnar til fullnaðarafgreiðslu á haustmánuðum 2012. Kynnt.
7.
Sjókvíaeldi í Reyðarfirði