Hafnarstjórn
104. fundur
2. október 2012
kl.
17:00
-
19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson
Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Bréf Heilbrigðiseftirlits Austurlands er varðar umsóknir um starfsleyfi fyrir laxeldi allt að 200 tonnum
Bréf HAUST frá 13.september þar sem fram kemur að Heilbrigðisnefnd Austurlands hafnar öllum starfsleyfisumsóknum um allt að 200 tonna leyfi til laxeldis. Vísað frá bæjarráði til kynningar í hafnarstjórn.
2.
Þekja frystihúsbryggju Eskifirði
Erindinu var frestað á fundi hafnarstjórnar þann 21. ágúst 2012. Fyrir fundinum láu minnisblöð framkvæmdastjóra frá fundum með Eskjumönnum og eiganda Tandrabergs. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ýta verkinu af stað skv. tillögu 3 í minnisblaði Siglingastofnunar.
3.
Hafnarmál á Norðfirði
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu málsins en unnið er að skipulagsferlinu, stálið hefur verið pantað og er væntanlegt til landsins í lok nómvember nk. Umræða hefur verið um stærð smábátahafnarinnar í samþykktri framkvæmd og því hvort hún verði strax of lítil. Hafnarstjórn fór yfir fyrirliggjandi tillögur og samþykkti að breyta fyrri ákvörðun um framtíðarsýn 1 og fara eftir framtíðarsýn 2.
4.
Fjárhagsáætlun 2013 - Hafnarstjórn
Farið yfir drög að fjárhagsáætlun 2013 ásamt gjaldskrá og langtímaáætlun. Drögin yfirfarin og tilbúin til kynningar í bæjarráði.