Fara í efni

Hafnarstjórn

105. fundur
16. október 2012 kl. 17:00 - 19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012
Málsnúmer 1202146
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 350 frá 19. september 2012. Til kynningar.
2.
Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál
Málsnúmer 1210103
Fram lögð samstarfsyfirlýsing við Fljótsdalshérað um þjónustu við olíuleit á Drekasvæðinu.  Hafnarstjórn samþykkir drögin fyrir sitt leiti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.
3.
Fjárhagsáætlun 2013 - Hafnarstjórn
Málsnúmer 1208061
Farið yfir drög fjárhagsáætlunar 2013 fyrir hafnarsjóð Fjarðabyggðar, ásamt gjaldskrá og framkvæmdaáætlun ársins 2013 auk langtímaáætlunar. Hafnarstjórn samþykkti áætlunina með óverulegum breytingum og vísar henni til bæjarstjórnar.
4.
Skipulagslýsing send til umsagnar hafnarstjórnar Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1210120
Erindi frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd dags. 16. október 2012 þar sem óskað er eftir umsögn hafnarstjórnar um skipulagslýsingu fyrir stækkun Norðfjarðarhafnar.  Hafnarstjórn samþykkir skipulagslýsinguna fyrir sitt leiti.