Fara í efni

Hafnarstjórn

345. fundur
7. september 2026 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir formaður
Sigurjón Andrés Jónasson varaformaður
Friðrik Júlíus Jósefsson aðalmaður
Birkir Snær Guðjónsson aðalmaður
Baldur Marteinn Einarsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Fundargerð ritaði:
Jóna Árný Þórðardóttir Hafnarstjóri
Dagskrá
1.
Staða og horfur í skemmtiferðaskipageiranum á Íslandi
Málsnúmer 2609038
Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, kynnir stöðu og horfur skemmtiferðaskipageirans á Íslandi. Hafnarstjórn þakkar kynninguna.
2.
Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn
Málsnúmer 2501155
Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðuna vegna landmótunar. Hafnarstjóra og sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
3.
Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining
Málsnúmer 2505124
Hafnarstjóri for yfir næstu skref í framhaldi af skipulagsgreiningu Mjóeyrarhafnar. Hafnarstjóra falið að vinna málið áfram.
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2027
Málsnúmer 2608131
Hafnarstjóri fór yfir fjárhagsupplýsingar í tengslum við fjárhagsáætlun 2027. Hafnarstjórn þakkar kynninguna og felur stjórnanda hafna að vinna áfram að áætlun ársins 2027.
5.
Ósk um aðgang að Norðfjarðarvita
Málsnúmer 2609029
Menningarstofa, fyrir hönd Mollie Tilley óskar eftir leyfi til að taka upp myndband í Norðfjarðarvita í tengslum við listamannadvöl hennar í Þórsmörk í nóvember. Hafnarstjórn samþykkir þetta fyrir sitt leiti.