Hafnarstjórn
346. fundur
28. september 2026
kl.
16:00
-
18:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir
formaður
Sigurjón Andrés Jónasson
varaformaður
Friðrik Júlíus Jósefsson
aðalmaður
Birkir Snær Guðjónsson
aðalmaður
Baldur Marteinn Einarsson
aðalmaður
Starfsmenn
Birgitta Rúnarsdóttir
embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Birgitta Rúnarsdóttir
stjórnandi hafna
Dagskrá
1.
Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2027
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Stjórnanda hafna falið að uppfæra gjaldskrá miðað við gefnar forsendur og leggja aftur fyrir hafnarstjórn.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2027
Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2027. Farið yfir forsendur launaáætlunar. Stjórnanda hafna falin áframhaldandi vinna við áætlunina og leggja aftur fyrir hafnarstjórn.
3.
Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining
Áframhaldandi umræða um næstu skref í kjölfar skipulagsgreiningar Mjóeyrarhafnar.
4.
Atvinnumál
Lagt fram sem trúnaðarmál innra minnisblað bæjarstjóra
5.
Ástandsskoðun Safnahússins í Neskaupstað
Lagt fram minnisblað um viðhald Safnahússins í Neskaupstað.
6.
Hafnasambandsþing 2026
Boðað hefur verið til Hafnasambandsþings Hafnasambands Íslands þann 22.-23. október 2026.
7.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 484. og 485. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.