Fara í efni

Hafnarstjórn

348. fundur
2. nóvember 2026 kl. 16:00 - 18:15
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir formaður
Sigurjón Andrés Jónasson varaformaður
Friðrik Júlíus Jósefsson aðalmaður
Birkir Snær Guðjónsson aðalmaður
Baldur Marteinn Einarsson aðalmaður
Starfsmenn
Birgitta Rúnarsdóttir embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Birgitta Rúnarsdóttir stjórnandi hafna
Dagskrá
1.
Stefnumótun móttaka skemmtiferðaskipa
Málsnúmer 2610252
Farið yfir samantekt af Seatrade Cruise Med ráðstefnunni og umræður á súpufundi með ferðaþjónustuaðilum í Fjarðabyggð sem haldinn var þann 29.október síðastliðinn. Efni fundarins var móttaka skemmtiferðaskipa í Fjarðabyggð. Góð þátttaka var á fundinum og mikill áhugi og umræður. Stjórnanda og verkefnastjóra hafna falið að móta tillögur á grundvelli umræðunnar og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
2.
Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining
Málsnúmer 2505124
Áframhaldandi umræða um næstu skref í kjölfar skipulagsgreiningar Mjóeyrarhafnar.
3.
Rafmagn Frystihússbryggja Leirubakki 9
Málsnúmer 2610253
Farið yfir ferli er varðar verðkönnun. Eftir yfirferð á ferli verðkönnunar er það mat hafnarstjórnar að ekki sé tilefni til breytinga er snúa að opnun tilboða, enda hafi verið gætt að jafnræði bjóðenda og málsmeðferð verið í samræmi við gildandi reglur og fagleg sjónarmið.
4.
Verðkönnun - Leirubakki 9 Eskifirði - Rafkerfi
Málsnúmer 2609302
Niðurstöður verðkönnunar í rafkerfi Leirubakka 9 á Eskifirði liggja fyrir. Tvö tilboð bárust og hafnarstjórn samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda.
5.
Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2026
Málsnúmer 2505143
Farið yfir stöðuna í framkvæmdum ársins 2026.
6.
Ástandsskoðun trébryggja Norðfjarðarhöfn
Málsnúmer 2610254
Farið yfir niðurstöður ástandsskoðunar á trébryggjunni í Norðfjarðarhöfn. Hafnarstjórn felur stjórnanda hafna að vinna að undirbúningi viðgerða og leggja áætlun þar um fyrir fund.
7.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Málsnúmer 2601118
Lögð fram til kynningar fundargerð 486. og 487. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.