Fara í efni

Hafnarstjórn

67. fundur
9. febrúar 2010 kl. 17:00 - 19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Umhverfis- og framkvæmdarmál Fjarðabyggðahafna
Málsnúmer 0904082
Til fundarins mætti umhverfisstjóri, Árni Steinar Jóhannsson, og fór yfir verkefni liðins árs og áætluð verkefni ársins 2010.
2.
Endurbygging Barksins
Málsnúmer 0904043
Staða málsins kynnt ásamt yfirstandandi verðkönnun.
3.
Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði
Málsnúmer 0905163
Kynntar hugmyndir frá Siglingastofnun varðandi endurbætur á gömlu bæjarbryggjunni á Norðfirði. Hafnarstjórn líst vel á þá tillögu sem sett er fram í bréfinu um áfangaskiptingu endurbóta á bryggjunni.  Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að skrifa Siglingastofnun varðandi þátttöku ríkisins í framkvæmdinni þar sem um ferjubryggju er að ræða.
4.
Smábátahöfn Eskifirði
Málsnúmer 0910146
Farið yfir hugmyndir að skipulagi smábátahafnarinnar. Hafnarstjórn felst á að vinna áfram eftir nýrri hugmynd að skipulagi hafnarinnar.
5.
Smábátahöfn Stöðvarfirði
Málsnúmer 0910145
Minnispunktar frá fundi með smábátasjómönnum á Stöðvarfirði kynntir. Hafnarstjórn felst á aða vinna eftir fyrirliggjandi hugmynd sem kynnt var á síðasta fundi.
6.
Smábátahöfn Reyðarfirði
Málsnúmer 1001100
Hafnarstjórn fór yfir fyrirliggjandi hugmynd að stækkun smábátahafnarinnar á Reyðafirði og felst á hana fyrir sitt leyti.
7.
Uppsögn á starfi
Málsnúmer 1002004
Kynnt bréf frá Óskari Sverrissyni starfsmanni hafnarinnar þar sem hann segir upp störfum.  Hafnarstjórn þakkar Óskari fyrir vel unnin störf.
8.
Starfsmannamál
Málsnúmer 1002012
Farið var yfir starfsmannamál á höfninni. Hafnarstjórn samþykkir að ráða í starf vélstjóra samanber umsókn sem liggur fyrir og að auglýsa eftir starfsmanni á Norðfjörð.
Rætt var um málefni olíubirgðastöðvar. Rætt var um hvort ætti að fara að bjóða upp á einkapláss fyrir smábáta eins og farið er að bjóða upp á víða annarsstaðar.