Hafnarstjórn
69. fundur
13. apríl 2010
kl.
17:00
-
19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson
framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Fundagerð stjórnar Hafnarsambands Íslands nr. 327. og ársreikningur
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 327 ásamt ársreikningi 2009. Kynnt.
2.
Aðalfundur Cruise Iceland haldinn á Djúpavogi 20. maí 2010.
Málið kynnt.
3.
Seatrade Miami - sýning
Fyrir fundinum lá minnisblað vegna ferðar á sölusýningu fyrir skemmtiferðaskip á Miami nú í mars. Hildigunnur og Sævar gerðu grein fyrir ferðinni.
4.
Starfsmannamál hafnanna
Framkvæmdsstjóri fór yfir stöðu máls. Auglýst hefur verið ítrekað eftir vélstjóra án árangurs, en síðast rann auglýsingafrestur út 6. apríl sl. Hafnarstjórn samþykkti að fela framkvæmdastjóra að auglýsa eftir hafnarstarfsmanni.
5.
Löndunarlögn við Síldarvinnsluna í Neskaupstað
Hafnarstjórn samþykkir að heimila uppsetningu löndunarlagnar framan við fiskiðjuver Síldarvinnslunnar á Norðfirði. Hafnarstjórn leggur áherslu að uppsetning lagnarinnar hindri eðlilega umferð á hafnarsvæðinu í eins litlum mæli og unnt er. Framkvæmdastjóra falið að fylgjast með framkvæmd verksins.
6.
Stöðvarfjörður löndunarkrani
Fyrir fundinum lá minnisblað frá framkvæmdastjóra. Hafnarstjórn samþykkir að kaupa krana í samræmi við umræðu á fundinum.
7.
Smábátahöfn Stöðvarfirði
Fyrir fundinum liggur minnisblað vegna verðkönnunar í flotbryggjur fyrir Fjarðabyggðarhafnir. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda G. Skúlason ehf.