Fara í efni

Hafnarstjórn

70. fundur
18. maí 2010 kl. 17:00 - 19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Aðalfundur Cruise Iceland haldinn á Djúpavogi 20. maí 2010.
Málsnúmer 1003135
Hafnarstjórn fól framkvæmdastjóra að vera fulltrúi á fundinum ásamt ferða og menningamálafullrtúa.  Sævar Guðjónsson verður til vara.
2.
Könnun meðal farþega og áhafna skemmtiferðaskipa
Málsnúmer 1005087
Kynntar samandregnar niðurstöður könnunar sem gerð var meðal farþega og áhafna á skemmtiferðaskipum sumarið 2009.
3.
Dæluhýsi og sjólögn
Málsnúmer 1004099
Erindi varðandi sjókælilögn fyrir álverið til afgreiðslu og umfjöllunar hjá Umhverfis og skipulagsnefnd. Kynnt.
4.
Framkvæmd við lengingu olíubyggju Norðfirði
Málsnúmer 0905161
Fyrir fundinum láu fundargerðir frá opnun verðkönnunar í ljósamasturshús og lagnir annars vegar og hins vegar frá opnun verðkönnunar í raflagnir og lýsingu á olíukantinum á Norðfirði. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðendur.
5.
Fjögurra ára samgönguáætlun 2011-2014
Málsnúmer 1004096
Bréf frá Siglingastofnun um umsóknir um ríkisframlög til framkvæmda á næsta samgönguáætlunartímabili sem er 2011 til 2014. Lagt fram til kynningar.
6.
Áfamhaldandi framkvæmdir við klæðningu á Gamla garðinn á Stöðvarfirði
Málsnúmer 1002079
Svarbréf Siglingastofnunar dags. 26. mars 2010 við bréfum Fjarðabyggðarhafna þar sem óskað er eftir þátttöku ríkisins í endurbótum á ferjubryggju á Norðfirði og endurbótum á gamla garðinum á Stöðvarfirði. Fjallað var um málið á fundi hafnarstjórnar 9. febrúar 2010. Hafnarstjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að sjá til þess að framlag ríkisins til endurbóta á gamla garðinum á Stöðvarfirði verði nýtt.  Í því sambandi samþykkir hafnarstjórn að leggja fram mótframlag.
7.
Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði
Málsnúmer 0905163
Svarbréf Siglingastofnunar dags. 26. mars 2010 við bréfum Fjarðabyggðarhafna þar sem óskað er eftir þátttöku ríkisins í endurbótum á ferjubryggju á Norðfirði og endurbótum á gamla garðinum á Stöðvarfirði. Fjallað var um málið á fundi hafnarstjórnar 9. febrúar 2010. Hafnarstjórn sættir sig við þá niðurstöðu sem fram kemur um fjárveitingar til ferjubryggja í bréfinu en erindi hafnarstjórnar er þar hafnað.
Fyrir fundinum lá kostnaðaráætlun vegna endurbyggingar á bæjarbryggjunnar á Norðfirði.  Hún yfirfarin og kynnt og vísað til nýrrar hafnarstjórnar.
Til viðbótar samþykkir hafnarstjórn að fela framkvæmdastjóra að hefja undirbúning að því að fjarlægja gömlu SÚN-bryggjuna og því verki verði lokið á árinu.
8.
Starfsmannamál hafnanna
Málsnúmer 1002012
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir umsóknum sem bárust í starf hafnarvarðar með meginstarfsstöð á Norðfirði. Sjö umsóknir bárust í starfið. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ganga frá ráðningu.
9.
Viðfangsefni í umfjöllun hjá Hafnarstjórn í maí 2010
Málsnúmer 1005088
Farið yfir helstu málefni sem eru í umfjöllun hjá hafnarstjórn við upphaf nýs kjörtímabils.