Fara í efni

Hafnarstjórn

77. fundur
27. október 2010 kl. 18:00 - 20:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Aðalfundarboð Fiskmarkaðs Austurlands 28.október 2010
Málsnúmer 1010111
Bréf dags. 15. október 2010 þar sem boðað er til aðalfundar Fiskmarkaðar Austurlands þann 28. október 2010. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vera aðalfulltrúi á fundinum og framfylgja ákvörðun hafnarstjórnar varðandi hugsanleg kaup hlutafjár.
2.
Fundagerðir CI á árinu 2010
Málsnúmer 1002039
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland 12. október 2010. Kynnt.
3.
Beiðni um undanþágu til að taka lóðs - skipstjóri Mv S.Rafael
Málsnúmer 1010140
Erindi frá Eimskipafélagi Íslands ehf dags. 14. október 2010 þar sem farið er fram á undanþágu frá hafnsöguskyldu og byggir erindið á heimild í hafnarreglugerð Fjarðabyggðar. Ásamt svari hafnarinnar við erindinu. Hafnarstjórn staðfestir erindið.
4.
Óskað eftir leyfi til uppsetningar á nótaleggjara á hafnarkant
Málsnúmer 1010151
Bréf frá Mannviti f.h. Egersund á Eskifirði dags. 20. október 2010 þar sem óskað er eftir heimild til að koma fyrir nótaleggjara á hafnarkantinn við netaverkstæðið. Hafnarstjórn samþykkir að veita heimild fyrir uppsetningu nótaleggjara.
5.
Íslenska sjávarútvegssýningin 2011
Málsnúmer 1010052
Boð um þátttöku á Íslensku sjávarútvegssýningunni 22. til 24. september 2011 sem halda á í Smáranum í Kópavogi. Hafnarstjórn hafnar þátttöku.
6.
Ósk um aukningu á framlagi til Sjóminjasafn Austurlands 2010
Málsnúmer 1010063
Erindi dags. 8. október 2010 frá forstöðumanni Safnastofnunar Fjarðabyggðar þar sem óskað er eftir framlagi til Sjóminjasafns Austurlands á árinu 2011.  Hafnarstjórn ákvað að fresta afgreiðslu þessa máls og fjalla um það síðar í tengslum við önnur málefni Sjóminjasafnsins.
7.
Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa
Málsnúmer 1005131
Umræða um útvíkkun samnings vegna undirbúnings komu skemmtiferðaskipa til Fjarðarbyggðar. Fyrir fundinum lágu drög að verktakasamningi.  Hafnarstjórn samþykkir samninginn fyrir sitt leiti en vísar honum til staðfestingar í bæjarráði.
8.
Fjárhagsáætlun 2011
Málsnúmer 1009099
Umfjöllun um fjárhagsáætlun hafnarsjóðs fyrir árð 2011. Hafnarstjórn samþykkti drög að fjárhagsáætlun og vísar þeim til bæjarráðs.