Fara í efni

Hafnarstjórn

78. fundur
30. nóvember 2010 kl. 17:00 - 19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Fundargerð 333. fundar Hafnasambands Íslands
Málsnúmer 1011084
Fundagerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 333 dags. 5. nóvember 2010. Til kynningar.
2.
Endurbygging Barksins
Málsnúmer 0904043
Gera þarf upplýsingaskilti við Barkinn þar sem gerð er grein fyrir sögu hans. Framkvæmdastjóri leggur til að menningarmálanefnd verði falið að koma með hugmynd að upplýsingaskilti. Hafnarstjórn samþykkti tillöguna.
3.
Mengunarvarnamál
Málsnúmer 1011207
Framkvæmdastjóri fór yfir hugmynd um fyrirkomulag mengunarvarna hjá Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ganga til samninga við Slökkvilið Fjarðabyggðar.
4.
Móttaka skipa á Norðfirði
Málsnúmer 1008103
Erindi frá hafnsögumanni Fjarðabyggðarhafna 20.ágúst 2010 og svar frá Siglingastofnun 17. nóv 2010 varðandi stærð skipa inn í Norðfjarðarhöfn. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ræða við Siglingastofnun um vinnureglur fyrir Norðfjarðahöfn.
5.
735 Tillaga að frágangi fjöru frá frystihúsbryggju út fyrir sýsluskrifstofu.
Málsnúmer 1011214
Fyrir fundinum lá tillaga að grjótvörn og frágangi á fjöru frá frystihúsbryggjunni og út fyrir sýsluskrifstofu á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir tillöguna fyriri sitt leiti.
6.
Smábátahöfn Stöðvarfirði
Málsnúmer 0910145
Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu framkvæmda við smábátahöfnina á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn samþykkti að láta breyta legu nýju floteininganna í samræmi við fyrirliggjandi teikningar.
7.
Áfamhaldandi framkvæmdir við klæðningu á Gamla garðinn á Stöðvarfirði
Málsnúmer 1002079
Kynnt staða undirbúnings teikningar fyrir áframhald vinnu við klæðningu á gamla garðinn á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn sammála um að setja kanttré á restina á gamla garðinum samhliða áður ákveðinni klæðningu á hann.
8.
Smábátahöfn Eskifirði
Málsnúmer 0910146
Framkvæmdastjóri fór yfir vinnu við endurskipulagningu smábátahafnarinnar á Eskifirði. Hafnarstjórn ákvað að fresta ákvörðun um varanlega staðsetningu olíubryggju.  Ákveðið var að framkvæmdastjóri í samvinnu við tæknisvið útfæri hagkvæmustu leið við snúning á núverandi trébryggju.
9.
Fjárhagsáætlun 2011
Málsnúmer 1009099
Yfirferð yfir fjárhagsáætlun 2011 ásamt gjaldskrá.