Hafnarstjórn
79. fundur
4. janúar 2011
kl.
17:00
-
19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson
Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Fundagerð 334.fundar stjórnar Hafnasambands Íslands
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands dags. 10. desember 2010. Kynnt.
2.
Fundagerðir CI á árinu 2010
Fundargerð stjórnar Cruise Icelands frá 8. desember 2010. Til kynningar
3.
Þátttaka í Seatrade Med í Cannes
Ferðaskýrsla vegna sölusýningar í Cannes í nóvember 2010. Kynnt. Einnig farið yfir vinnuáætlun næstu 5 mánaða sem felur í sér m.a. samskipti við ferðaskrifstofur og sölusýningu á Miami.
Hafnarstjórn samþykkir að bæta við einum gjaldalið í gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna, farþegagjaldi sem verður 50 kr. á farþega. Hafnarstjórn sendir ákvörðunina til samþykktar í bæjarráði.
4.
Aðalfundarboð Fiskmarkaðs Austurlands 28.október 2010
Bréf frá Fiskmarkaði Austurlands dags. 16. desember 2010 þar sem tilkynnt er um greiðslu arðs til hluthafa. Kynnt.
5.
Mengunarvarnamál
Drög að samningi við slökkvilið Fjarðabyggðar vegna umsjónar með mengunarvarnarbúnaði lagður fyrir hafnarstjórn. Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjandi samning.
6.
Smábátahöfn Eskifirði
Fyrir fundinum lá minnisblað vegna framkvæmda við smábátahöfnina á Eskifirði og niðurrekstur staura við snúning eldri flotbryggju að grjótgarðinum. Hafnarstjórn samþykkti að reka niður staura út að enda á grjótgarðinum í framhaldi af því sem búið er eins og fyrirhugað var skv. teikningu af höfninni.