Hafnarstjórn
96. fundur
6. mars 2012
kl.
17:00
-
19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson
Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Hafnarmál á Norðfirði
Til fundarins mætir fulltrúi frá Siglingastofnun, Sigurður Áss Grétarsson, til að fara yfir hugmyndir að endurskipulagningu Norðfjarðarhafnar og möguleikum á rýmkun hafnarinnar. Fyrirhugaður er fundur með hagsmunaaðilum í framhaldinu en fundartími verður ákveðinn síðar. Páll Bj. Guðmundsson yfirgaf fundinn.
2.
Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 343 dags. 17. febrúar 2012 til kynningar ásamt ársreikningi Hafnasambandsins 2011.
3.
Smábátahafnir Fjarðabyggð
Í framhaldi af umræðu um fjölgun viðleguplássa í smábátahöfninni á Stöðvarfirði þá er hægt að bæta við þrem átta metra fingurm við flotbryggjurnar og skapa þannig fleiri pláss og betra aðgengi fyrir fleiri smábáta. Hafnarstjórn samþykkir að bæta við þrem fingrum.
4.
Smábátahöfn Reyðarfirði
Farið yfir teikningar að yfirborðsfrágangi við smábátahöfnina á Reyðarfirði. Hafnarstjórn lýsir yfir ánægju með útkomuna.