Hafnarstjórn
73. fundur
31. ágúst 2010
kl.
16:00
-
19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Steinþór Pétursson
framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Dagskrá
1.
Fjögurra ára samgönguáætlun 2011-2014
Farið yfir erindi Siglingastofnunar dags. 19. apríl og 12. ágúst vegna samgönguáætlunar 2011 til 2014. Send hefur verið umsókn um framlag úr áætluninni á árinu 2011 til framkvæmda við dýpkun smábátahafnarinnar á Norðfirði. Kynnt.
2.
Hafnasambandsþing 23 og 24 septemer 2010
Erindi frá Hafnasambandi Íslands þar sem boðað er til Hafnasambandsþings 23. og 24. september 2010. Hafnarstjórn ákvað að aðalmenn eigi kost á því að fara á þingið auk framkvæmdastjóra hafnarinnar og yfirhafnarverði.
3.
Þátttaka í Seatrade Med í Cannes
Hafnarstjórn ákvað að framkvæmdastjóri fari á sölusýninguna ásamt ferða og menningamálafulltrúa.
4.
Framhald fyrirspurnar frá hafnarstjórnarfundi 21. júlí 2010 um kræklingaeldi innan hafnarsvæði
Farið var yfir minnisblað framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna um gild starfsleyfi fyrir fiskeldi og kræklingaeldi innan hafna í Fjarðabyggð. Hafnarstjórn fór yfir gögnin og velti fyrir sér staðsetningu á kræklingalínum. Framkvæmdastjóri skoðar málið nánar.
5.
Bæjarbryggjan á Norðfirði
Bréf frá Kristni V. Jóhannssyni dags. 23. ágúst 2010 varðandi bæjarbryggjuna á Norðfirði og endurbætur á henni. Hafnarstjórn þakkar bréfritara fyrir bréfið og felur framkvæmdastjóra að svara erindinu.