Fara í efni

Landbúnaðarnefnd

1. fundur
3. september 2010 kl. 10:00 - 12:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Jóhann Eðvald Beneditksson mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
Tilnefning varamanna í Landbúnaðarnefnd
Málsnúmer 1009011

Landbúnaðarnefnd tilnefnir eftirfarandi varamenn í nefndina og vísar til staðfestingar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  • Baldur Rafnsson, Vattarnesi

  • Önundur Erlingsson, Skuggahlíð

  • Marsibil Erlendsdóttir, Dalatanga

  • Magnús Guðnason, Engjabakka

  • Eiður Ragnarsson, Reyðarfirði

2.
Fjallskil í Norðfirði á komandi hausti
Málsnúmer 1008133

Lagt fram bréf frá Guðröði Hákonarson frá Efri-Miðbæ í Norðfirði. Þar fer Guðröður fram á endurskoðun á svæði sem hann er ábyrgur fyrir í fjallskilum. Jafnframt óskar Guðröður eftir því við nefndina að hún hlutist til með að það fé sem sótt hefur inn í þéttbýlið verði sérstaklega smalað saman þannig að hægt verði sjá hverjir eiga féð og það verði svo skorið. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Nefndin getur ekki fallist að minnka svæði, en bendir á að þeir aðilar sem gert er skylt að bera ábyrgða á fjallskilum ákveðna svæða, er heimilt að kalla til sín þann mannskap sem þarf til að smala viðkomandi svæði. Er þá einkunn horft til þeirra aðila sem eiga þar fjárvon.

Nefndin er sammála því að féð sem sækir inn í þéttbýlið á Norðfirði verið smalað sérstaklega til réttar og eigendum gert að sækja sitt fé, en það verði að vera eiganda meta hvort fénu verði slátrað. 

 

3.
Gangnaboð 2010
Málsnúmer 1009012

Landbúnaðarnefnd samþykkir að fjáreigendur verði gerðir ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir verði gerðir ábyrgir fyrir fjallskilum á því  landi sem þeir eiga  fjárvon skv.  18 gr. Fjallskilasamþykktar fyrir Múlasýslur.  Fyrir 6.  nóvember 2008 mun fjallskilastjóri  láta kanna og smala þá eyðistaði þar sem hugsanlega er fjárvon.  Kostnaður af þeim eftirleitum greiðist úr fjallskilasjóði  Kr.  18.000.- pr. dagsverk.  Jafnframt samþykkir landbúnaðarnefnd eftirfarandi tillögu fyrir haustið 2010 að skiptingu fjallskiladeildarinnar í gangnasvæði og skulu  göngur fara fram sem hér segir:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Tilgreindir umsjónaraðilar eru gangnaforingjar:

Norðfjarðarsvæði:  

Gangnastjóri er Axel Jónason og Leifur Jónsson skulu sjá um fjallskil frá Nípu að Fannardalsá.  Guðröður Hákonarson skal sjá um fjallskil í Fannardal bæði norðan og sunnan ár.  Þórður Júlíusson  skal sjá um fjallskil í Seldal, Seldalsháls og Hólaströnd. Sigfinnur Karlsson og Önundur Erlingsson skulu sjá um fjallskil sunnan Norðfjarðarár í Oddsdal og í Hellisfirði og Norðfirði.

Eskifjarðarsvæði:

Halldór Jóhannesson er gangnastjóri og hefur umsjón með fjallskilum fyrir utan Hrafnsdal og útúr. Magnús Guðnason umsjón með fjallskilum frá Bleiksá að Helgustaðadal.  Sjöfn Gunnarsdóttir umsjón með fjallskilum í Helgustaðadal og Hrafnsdal.   Fjarðabyggð leggur til 3 dagsverk í Hellisfjörð sunnan ár.  Fjallskilastjóri  hefur umsjón með fjallskilum frá Hólmahálsi að Bleiksá.

Reyðar-, Fáskrúðs- og Stöðvafjarðarsvæði:

Sigurður Baldursson er gangnastjóri Fjarðabyggðar í samráði við fjallskilastjóra Fljótsdalshéraðs sjá um fjallskil á svæðinu frá Hólmahálsi að Fagradalsá að sveitarfélagsmörkum. Sunnan varnarlínu að Stöðvarfirði munu fjáreigendur sjá um fjallskil eins og verið hefur.

Mjóifjörður:

Marsibil Erlendsdóttir gangnastjóri.  Hún hefur umsjón með fjallskilum í Mjóafirði samkvæmt samkomulagi þá munu Vallamenn smala sínu fé í Mjóafirði.

Gildir fyrir öll fjallskilasvæði:

Þeir aðilar sem tilgreindir eru sem gangnaforingjar á sínu svæði geta kallað til aðra sem fjár eiga von á þeim svæðum sem þeim eru falin.

Göngur skulu fara fram á tímabilinu 18. ? 26. september 2010.  Seinni göngum skal lokið  15. október.

 Viðurlög:

Landbúnaðarnefnd vekur athygli gangnaforingja á að viðurlög við gangnarofi eru Kr. 18.000.-Landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar hefur komið á þeirri vinnureglu að fjáreigendur sem eru ábyrgir fyrir  fjallskilum  á því landi sem þeir eiga fjárvon  á  samkvæmt 18. Gr. fjallskilasamþykktar fyrir Múlasýslur.

Vegna 17. gr. fyrrgreindrar samþykktar gerir landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar tillögu um hvernig  göngum skuli háttað á svæði norðan

varnarlínu í Reyðarfirði, laugardag 18. september  2010. Smalað frá Hólmanesi að austan og Njörvadalsá að vestan og inn Svínadal að sveitarfélagsmörkum.  3 menn að austan, 2 menn að vestan.   Sunnudag 19. september 2009.  Smalað frá Njörvadalsá að austan og frá varnarlínu í Hjálpleysu upp Fagradal, 2 menn á Sléttadal, 1 maður á Grænafell, 2 menn á Hjálpleysu og 1 mann í Fagradal austan ár. 

Landbúnaðarnefnd gefur hlutaðeigandi kost á að koma með breytingar  á fyrirkomulagi og skulu  þær hafa borist fyrir 13. september 2009.

 

Formaður landbúnaðarnefndar er með ósk frá Breiðdalshrepp um að Fjarðabyggð veiti leyfi til að rétt í Hvalnesi verði lagfærð. Landbúnaðarnefnd heimilar Breiðdalshrepp að lagfæra, enda réttin eingöngu notuð af fjáreigendum í Breiðdal.