Fara í efni

Landbúnaðarnefnd

3. fundur
12. janúar 2011 kl. 14:00 - 16:00
í Molanum
Fundargerð ritaði:
Jóhann Eðvald Benediktsson mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
Refa -og minkaveiði fyrikomulag 2011
Málsnúmer 1101085

Lögð fram tillaga umhverfisfulltrúa, dagsett 11. janúar 2011, um fyrirkomulag refa og minkaveiða. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Lagt er til að fyrirkomulag minkaveiða verði eftirfarandi:

Ráðnir verði veiðimenn í grenjavinnslu og greidd verði verðlaun, tímakaup og akstur skv. gjaldskrá UST:  3000 kr. fyrir hvern veiddan mink. 

Tímakaup verði 800 kr/klst. - Akstur verði 79 kr/km. 

Greitt verði til annarra veiðimanna skv. gjaldskrá UST utan grenjavinnslu-tíma þ.e. 3000 kr.- fyrir veiddan mink.

 

Lagt til að fyrirkomulag refaveiða verði eftirfarandi:

Ekki verði sérstaklega ráðnir veiðimenn á veiðisvæðin.  Greitt verði öllum veiðimönnum skv. gjaldskrá UST:

7.000 kr.- fyrir fullorðið dýr. - 1.600 kr.- fyrir yrðling.

 

Nefndin samþykkir tillögu umhverfisfulltrúa og vísar henni til staðfestingar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
2.
Sauðfjárveikivarnarlína í Reyðarfirði
Málsnúmer 1011086

Bréf frá landeigendum og ábúendum jarðarinnar Áreyja frá 10.nóvember 2010 er varðar ósk um nýja staðsetningu sauðfjárveikivarnarlínu. Málið áður tekið fyrir á 221. fundi bæjarráðs og vísað til landbúnaðarnefndar með beiðni um umsögn. Nefndin tekur heilshugar undir óskir bréfritara og beinir því til bæjarráðs að það hlutist til um við ráðuneytið að girðingin verði færð í norðurlandamörk Áreyja upp á Fagradal. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Hagkvæmasta leiðin er að sauðfé sem beitt er á Fagradal verði fært vestur fyrir Grímsá og um leið verði Lagarfljótslína færð í Grímsá. Með þessum aðgerðum væri hægt að spara mikinn kostnað við girðingu upp Fagradal og þá næðist einnig það markmið Fjarðabyggðar að umrædd svæði væru fjárlaus einsog skilgreint er í aðalskipulagi.
3.
Gjaldtaka vegna fjallskila
Málsnúmer 1101110
Málið rætt. Talsvert er orðið um eyðijarðir í Fjarðabyggð þar sem sveitarfélagið þarf að bera mikinn kostnað vegna fjallskila á hverju ári. Nefndin felur umhverfisstjóra að koma með greiningu og tillögu að gjaldtöku á næsta fund nefndarinnar.
4.
Stefna Fjarðabyggðar með kaup og sölu á jörðum
Málsnúmer 1101111
Málið rætt. Umhverfisstjóra falið að leggja fram drög að stefnu fyrir næsta fund nefndarinnar.