Fara í efni

Landbúnaðarnefnd

6. fundur
4. september 2012 kl. 14:00 - 16:00
í Molanum
Fundargerð ritaði:
Árni Steinar Jóhannsson Umhverfisstjóri
Dagskrá
1.
Ágengi búfjár í þéttbýli
Málsnúmer 1109036
 Málinu frestað.
2.
Bréf til landbúnaðarnefndar - fyrirkomulag refaveiðar 2011
Málsnúmer 1101287
Nefndin fjallaði um bréf frá Heiðberg Hjelm dagsett 26.janúar 2011 er varðar fyrirkomulag refa- og minkaveiða í Fjarðabyggð. Nefndin felur Umhverfisstjóra að gera uppkast að svari til Heiðbergs Hjelm.  Fjallað verður um svarbréfið á næsta fundi nefndarinnar.
3.
Fyrirkomulag á refa- og minkaveiðum
Málsnúmer 1208083
Umhverfisstjóri kynnti nefndinni samantekt um stöðu refa- og minkaveiða í sveitarfélaginu. Endanlegt uppgjör vegna veiðanna verður tekið fyrir á næsta fundir nefndarinnar en 18 minkar og 71 refir hafa þegar verið skráðir inn. Skýrsla yfir veiðarnar verður tilbúin fyrir næsta fund.
4.
Gangnaboð 2012
Málsnúmer 1208087
Landbúnaðarnefnd samþykkir að fjáreigendur verði gerðir ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur.
Landbúnaðarnefnd tilnefnir Sigurð Baldursson fjallskilastjóra fyrir Fjarðabyggð. Göngur skulu fara fram á tímabilinu 15.-25. september 2012. Seinni göngum skal lokið fyrir 15. október 2012.
Fyrir 6. nóvember 2012 mun fjallskilastjóri láta kanna og smala þá eyðistaði þar sem hugsanlega er fjárvon. Kostnaður af þeim eftirleitum greiðist úr fjallskilasjóði, kr. 18.000.- pr. dagsverk.
Jafnframt samþykkir landbúnaðarnefnd eftirfarandi tillögu fyrir haustið 2012 að skiptingu fjallskiladeildarinnar í gangnasvæði og skulu göngur fara fram sem hér segir:  Tilgreindir umsjónaraðilar eru gangnaforingjar. Norðfjarðarsvæði:  Gangnastjóri er Axel Jónsson og Leifur Jónsson skal sjá um fjallskil frá Nípu að Fannardalsá. Guðröður Hákonarson skal sjá um fjallskil í Fannardal bæði norðan og sunnan ár. Þórður Júlíusson skal sjá um fjallskil í Seldal og Staðarháls. Sigfinnur Karlsson, Önundur Erlingsson og Jón Þór Aðalsteinsson skulu sjá um fjallskil sunnan Norðfjarðarár og Oddsdal. 
Á Hólaströnd sjá um fjallskil: Viðar Guðmundsson og Heiðar Sveinsson. Eskifjarðarsvæði: Halldór Jóhannsson er gangnastjóri og hefur umsjón með fjallskilum fyrir utan Hrafnsdal og útúr eins og þörf er á, þó ekki í Viðfirði og Sandvík. Verði vart við fé í Viðfirði eða Sandvík, þá verður gerður út leiðangur til að ná í það. Magnús Guðnason hefur umsjón með fjallskilum frá Bleiksá að Helgustaðadal. Sjöfn Gunnarsdóttir hefur umsjón með fjallskilum í Helgustaðadal og Hrafnadal.
Hellisfjarðarsvæði: Lagt er til að allt Hellisfjarðarsvæðið verði smalað samdægurs laugardaginn 22.september 2012, gangnastjórar verði þeir Önundur Erlingsson og Sigfinnur Karlsson og leggi þeir til 5 menn, Sjöfn Gunnarsdóttir leggi til 2 menn, því til viðbótar leggi Fjarðabyggð til 5 menn.Þá sjá um fyrirstöðu vestan Hrafnadals, Sjöfn Gunnarsdóttir og að austan Halldór Jóhannsson.  
Mjóifjörður: Marsibil Erlendsdóttir er gangnastjóri. Hún hefur umsjón með fjallskilum í Mjóafirði og samkvæmt samkomulagi þá munu Vallamenn smala sínu fé í Mjóafirði.
Gildir fyrir öll fjallskilasvæði:  Þeir aðilar sem tilgreindir eru sem gangnaforingjar á sínu svæði geta kallað til aðra sem fjár eiga von á þeim svæðum sem þeim eru falin. Landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar hefur komið á þeirri vinnureglu að fjáreigendur eru ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon á samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur. 
Fjallskil á svæðinu frá Bleiká að Hjálpleysuá að sveitafélagsmörkum við Fljótsdalshérað hafa verið framkvæmd af fjáreigendum á Völlum í samráði við fjallskilastjóra Fjarðabyggðar.  Sunnan varnarlínu í Reyðarfirði munu fjáreigendur sjá um smölun eins og verið hefur. Verði fjár vart í Reykjadal og austan hans í Mjóafirði verður gerður út leiðangur. Lagt er til að smalað verði helgina 15. til 16. september 2012 og að fjáreigendur í Breiðdal sjái um smölun í Stöðvardal að Kambanesi.
5.
Hreindýr - bætt umgengni og umhirða lands.
Málsnúmer 1205132
Vegna bókunar á 43.fundi ESU varðandi bætta umgengni og umhirðu lands svo komast megi hjá því að hreindýr festist og drepist í girðingum og drasli sem maðurinn ber ábyrgð á.
Nefndin bendir á að frá árinu 2005 hafa hópar sjálfboðaliða verið við störf í sveitarfélaginu og unnið meðal annars við niðurrif gamalla girðinga og hreinsun landssvæða.  Landbúnaðarnefnd felur Umhverfisstjóra að taka saman greinargerð um þessa starfsemi undanfarinna ára.
6.
Notkun vélknúinna ökutækja við leitir
Málsnúmer 1208069
Rit Umhverfisstofnunar um akstur utan vega kynnt nefndinni.
7.
Sauðfjárbeit á Fagradal
Málsnúmer 1101109
Landbúnaðarnefnd felur Umhverfisstjóra að koma á fundi með Fljótsdalshéraði um afréttarmál.
8.
Skráning hálendis- og dreifbýlisslóða
Málsnúmer 1206010
Landbúnaðarnefnd felur Umhverfisstjóra að rita Félagi leiðsögumanna með hreindýraveiðum bréf, þar sem fram komi upplýsingar um fjallaslóða  í sveitarfélaginu samanber Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027.