Mannvirkjanefnd
|
Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dagsett 27. maí 2009, vegna frumvarps til vegalaga. Eftirfarandi samþykkt var gerð á fundi Sambands íslenskra sveitarfélaga þann 19. maí síðastliðin:""Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga leggur áherslu á við sveitarfélög sem ekki telja að örugg og fullnægjandi fjármögnun liggi fyrir, að þau gangi ekki frá samningum við Vegagerðina um ábyrgð þeirra á viðhaldi vega, skv. þeirri vegaskrá sem nú liggur fyrir. Sambandið hefur komið þeirri kröfu á framfæri við samgönguráðherra og Vegagerðina að tryggja verði fjármögnun af hálfu ríkisins til sveitarfélaga vegna þeirra auknu skyldna sem settar eru á sveitarfélögin með nýjum vegalögum nr. 80/2007 sem tóku gildi 1. janúar 2008. Þessi afstaða sambandsins hefur ítrekað komið fram, m.a. í erindi til samgönguráðherra, dags. 30. des. 2008, sem ekki enn hefur verið svarað formlega, að áður en vegaskráin taki gildi liggi fyrir yfirlýsing frá ráðherra um að sá aukni kostnaður sem fyrirsjáanlega mun falla á sveitarfélögin verði að fullu fjármagnaður af ríkissjóði.""
Bókun Samband íslenskra sveitarfélaga er samhljóða bókun mannvirkjanefndar frá 30. apríl 2009. Mannvirkjanefnd lýsir yfir fullum stuðningi við Yfirlýsingu Sambands íslenskara sveitarfélaga og leggur áherslu á að ekki verði tekið við núverandi vegköflum nema að fjármagn liggi fyrir frá ríkinu.
Eftirlitsmaður verkkaupa hefur samþykkt umbeðin frest verktaka vegna magnaukninga, viðbótar- og aukaverka. Mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemd við lengingu á verktíma en hvetur verktaka og eftirlit til að flýta verklokun eins og hægt er.