Mannvirkjanefnd
Lagt fram minnisblað mannvirkjastjóra, dagsett 19. maí 2010. Þar er lagt til að þakgluggum á leikskólanum Sólvöllum verði fjarlægðir og götum lokað. Mannvirkjanefnd samþykkir að turnum verði lokað.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lögð fram tillaga að breytingu á Sigfúsarhúsi á Norðfirði, en tillagan var unnin í samvinnu við félag eldriborgara þar í bæ. Einnig er lagður fram tölvupóstur frá formanni félagsins þar sem kemur fram samþykki félagsins að fara í eftirfarandi breytingar. Mannvirkjanefnd samþykkir að framkvæma fyrir 750 þúsund sem eru á áætlun ársins og sér það helst fara í að bæta eldhúsaðstöðu og jafnframt hvetur mannvirkjanefnd komandi bæjarstjórn að gera heilstætt mat á húsnæðisþörf félags eldri borgara á Norðfirði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lagt fram til kynningar bréf dagsett 4. apríl unnið af Mannvit hf. fyrir mannvirkjasvið til umhverfisstofnunar, þar sem sótt er um leyfi til að koma menguðum jarðvegi fyrir í Þernunesi í lokaðri gryfju. Umhverfisstofnun hafnar beiðni Fjarðabyggðar í bréfi dagsettu 29. apríl. Ástæða höfnunarinnar er að umræddur jarðvegur er flokkaður sem spilliefni samkvæmt reglugerð nr. 184/2002 og í starfsleyfi fyrir urðunarstaðin í Þernunesi er ekki heimild til að urða spilliefni. Mannvirkjanefnd felur mannvirkjasviði að halda áfram með málið.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. maí 2010 frá Mörtu Kristjánsdóttir, þar sem kemur fram beiðni um svæði undir skatepark völl ásamt beiðni til Fjarðabyggðar um framlag í formi efnis til að byggja skate ramp. Mannvirkjanefnd tekur vel í erindið og sér fyrir sér að geta látið eitthvað efni í verkið en vísar erindi jafnframt til umhverfis- og skipulagsnefndar vegna staðsetningar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lögð fram samskipti milli Fjarðabyggðar, KFF og KSÍ vegna vallarmála við Eskifjarðarvöll, en þar kemur fram að KSÍ er tilbúið að veita KFF leikheimild á Eskifjarðarvelli eftir að farið verður í ákveðnar endurbætur. Þær endurbætur sem farið verður í eru eftirfarandi:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
- Fjarlægja grjótmulning umhverfis völlinn norðan og sunnan megin og leggja grasþökur á svæðið þannig að það nái a.m.k. 4 metra frá hliðar- og endalínu.
- Leggja grasþökur á svæðið að inngönguhliði leikmanna og yfir allt tækni svæðið við varamannaskýlið.
- Girða af öryggissvæðið umhverfis völlinn í samræmi við reglugerð.
- Uppsetningu á Vallarklukku en KFF er með söfnun fyrir henni.
Til þessara framkvæmda fær Fjarðabyggð/KFF styrk sem nemur 2,5 milljónum í ár. Mannvirkjanefnd fagnar því að keppnisleyfi fyrir Eskifjarðarvöll verði gefið út fyrir sumarið.