Skipulags- og framkvæmdanefnd
68. fundur
8. september 2026
kl.
15:00
-
17:15
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Kristinn Þór Jónasson
varaformaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
aðalmaður
Húnbogi Sólon Gunnþórsson
aðalmaður
Hafþór Eiríksson
aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson
embættismaður
Erla Margrét Gunnarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck
Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027
Lagt fram bréf fjármálastjóra um úthlutun bæjarráðs á fjárhagsramma nefndarinnar fyrir árið 2027. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og felur sviðsstjóra að vinna áfram að áætlun ársins árið 2027.
2.
Málaflokkayfirlit
Farið yfir stöðu málaflokksins. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
3.
Byggingarleyfi Hraun 1 - Stálgrindarhús
Umsókn um byggingarleyfi fyrir stálgrindarhús við Hraun 1. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
4.
Byggingarleyfi Hraun 11a
Umsókn um byggingarleyfi Hraun 11a, 731 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
5.
Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
Farið yfir stöðu verkefnisins. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram.
6.
Umferðarsamþykkt
Lögð fram áætlun frá Eflu í gerð Umferðisöryggisáætlunar fyrir Fjarðabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar erindinu til áfram haldandi umræðu.
7.
Stekkjargata - Torg og garðsvæði við Egilsbúð
Lögð fram endanleg tillaga að hönnun við torg innan við Egilsbúð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða tillögu og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
8.
Umsókn um stöðuleyfi
Sótt eru um stöðuleyfi fyrir viðarperlugeymslu úr Stáli við Heiðarveg 14A, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfi. Nefndin leggur áherslu á snyrtilegan frágang.
9.
Ósk um að erindi um göngubrú yfir Grjótá
Ósk um að erindi um göngubrú yfir Grjótá, Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar erindið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
10.
Göngubrú yfir Lambeyrará
Lögð fram fyrirspurn Skógræktarfélags Eskifjarðar um göngubrú. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að skoða útfærslu á málinu í samráði við Skógræktarfélag Eskifjarðar.
11.
Umsókn um stækkun á lóð við Fagrahlíð 11 ESK
Umsókn um stækkun á lóð við Fagrahlíð 11 ESK. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stækkunina og felur skipulagsfulltrúa að útbúa lóðarblað og leggja fyrir fund að nýju.
12.
Fundaáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar
Lögð fram fundaráætlun fyrir árið 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fundaráætlunina.