Skipulags- og framkvæmdanefnd
70. fundur
12. október 2026
kl.
15:00
-
18:00
í Molanum fundarherbergi 4
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Kristinn Þór Jónasson
varaformaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
aðalmaður
Húnbogi Sólon Gunnþórsson
aðalmaður
Guðröður Hákonarson
varamaður
Starfsmenn
Aron Leví Beck Rúnarsson
embættismaður
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Erla Margrét Gunnarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck
Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027
Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun Skipulags- og framkvæmdanefndar fyrir árið 2027. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra áfram haldandi vinnu við fjárhagsáætlun.
2.
Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2027
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
3.
Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2027
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Tillaga að uppfærslu gjaldskrár vísast að aflokinni umfjöllun nefndar til bæjarráðs ásamt minnisblaði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar afgreiðslu þar til fyrir liggur uppfærð byggingarvísitala frá Hagstofunni.
4.
Gjaldskrá fasteignagjalda 2027
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Tillaga að uppfærslu gjaldskrár vísast að aflokinni umfjöllun nefndar til bæjarráðs ásamt minnisblaði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar uppfærslu gjaldskrár.
5.
Gjaldskrá vatnsveitu 2027
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
6.
Gjaldskrá hitaveitu 2027
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
7.
Gjaldskrá fjarvarmaveita 2027
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
8.
Gjaldskrá fráveitu 2027
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
9.
Gjaldskrá rafhleðslustöðva 2027
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði. Nefndin samþykkir einnig tillögu um að hætta rekstri hleðslustöðva og felur sviðsstjóra að sjá til þess að hleðslustöðvar í eigu Fjarðabyggðar verði fjarlægðar þar sem stöðvarnar eru úreltar.
10.
Gjaldskrá hunda- og kattahald 2027
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
11.
Gjaldskrá fyrir urðun úrgangs 2027
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Tillaga að uppfærslu gjaldskrár vísast að aflokinni umfjöllun nefndar til bæjarráðs ásamt minnisblaði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar uppfærslu á gjaldskrá.
12.
Áfangastaðir í Fjarðabyggð - uppbyggingarfasi
Lagt fram minnisblað frá Önnu Katrínu Svavarsdóttur hjá Eflu, yfirlit yfir stöðu verkefna sem hlotið hafa styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða á undanförnum árum, ásamt umfjöllun um mögulegt framhald og framtíðaráherslur. Staðan miðast við lok september 2026. Minnisblaðið var unnið í samráði við sviðsstjóra skipulags-og framkvæmdasviðs. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram.
13.
Breyting á aðalskipulagi v. Bensínsstöð við Búðareyri
Lögð fram tillaga um óverulega breytingu á aðalskipulagi á vinnslustigi vegna bensínstöðvar við Búðareyri. Tillagan snýr að því að landnotkun á hornlóðinni þar sem bensínstöð Orkunnar er, VÞ-300, sem er íbúðarbyggð haldi sér en í staðinn verði gerð óveruleg breyting sem bætir eftirfarandi við skilmála reitsins: Heimilt er að reka áfram bensínstöð á horni Búðareyrar og Réttarholts, meðan þörf er fyrir þjónustu af því tagi. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á aðalskipulagi og vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
14.
Breyting á aðalskipulagi - Stækkun reits fyrir hjúkrunarheimili á Eskifirði
Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna stækkun reits fyrir hjúkrunarheimili á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir vinnslutillögu og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillögu á vinnslustigi.
15.
Deiliskipulagsvinna í Neskaupstað
Lagt fram bréf frá Hafþóri Eiríkssyni, fulltrúa Miðflokksins, dags. 28. september 2026 þar sem óskað er eftir greiningu á hvernig haga megi deiliskipulagsvinnu í Nesskaupstað. Einnig lagt fram minnisblað skipulags- og umhverfisfulltrúa er varðar deiliskipulagsgerð í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna, unnið hefur verið að möguleikum til að fjölga lóðum í Neskaupsstað undanfarna mánuði og eru næstu skref dregin hér saman í minnisblaði. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að hefja strax endurskoðun á deiliskipulagi Bakka 3 auk þess að undirbúa deiliskipulagsgerð milli Urðarteigs og Strandgötu.
16.
Breyting á deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði
Lagt fram til samþykktar breyting á deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði. Tillagan er nú búin í auglýsingu og svör við athugasemdum einnig lagðar fram. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
17.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Norðfjörður - Tjaldsvæði
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Norðfjörður - Tjaldsvæði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarstjórn. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif.
18.
Umferðaröryggi við gatnamót Ásgerðis og Bakkagerðis á Reyðarfirði
Úrbætur á umferðaröryggi við gatnamót Ásgerðis og Bakkagerðis á Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnenda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að kynna fyrirhugaða lokun við gatnamót Ásgerðis og Bakkagerðis skv. gildandi umferðarlagasamþykkt fyrir íbúum Ásgerðis og Vallagerðis.
19.
Byggingarleyfi Naustahvammur 67 - Mjöltankar
Umsókn um byggingarleyfi Naustahvammur 67 - Mjöltankar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhuguð byggingaráform og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
20.
Vopnaburður á útivistarsvæðum Reyðarfjarðar
Lagt fram erindi til Fjarðabyggðar, þar sem óskað er eftir því að sveitarfélagið taki til skoðunar að banna vopnaburð á skilgreindum útivistarsvæðum Reyðarfjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir erindið og hvetur þá sem ganga um opin svæði til að virða þau lög og þær reglur sem gilda þ.m.t vopnalög nr. 16/1998.
21.
Umsókn um lóð Egilsbraut 16, 740 Norðfirði
Umsókn um lóð Egilsbraut 16, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti lóðarúthlutunina og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
Guðröður Hákonarson vék af fundi undir þessum lið.
Guðröður Hákonarson vék af fundi undir þessum lið.
22.
Framkvæmdaáætlun vegna baðstofu í Kvíabólsfjöru
Lögð fram framkvæmdaáætlun framkvæmdahóps baðstofunnar í Kvíabólsfjöru, Egilsbraut 16. Skipulags- og framkvæmdarnefnd þakkar fyrir innsend gögn og sýndan áhuga.
Fyrirliggur umsókn um lóðina að Egilsbraut 16 og ákveðið hefur verið að úthluta lóðinni til þess umsækjanda.
Guðröður Hákonarson vék af fundi undir þessum lið.
Fyrirliggur umsókn um lóðina að Egilsbraut 16 og ákveðið hefur verið að úthluta lóðinni til þess umsækjanda.
Guðröður Hákonarson vék af fundi undir þessum lið.
23.
Tillaga til skipulags- og framkvæmdanefndar Fjarðabyggðar
Tillaga til skipulags- og framkvæmdanefndar Fjarðabyggðar. Gerð tímasettrar áætlunar um framkvæmdir við nýtt tjaldsvæði í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að leggja fyrir fund áætlun um framkvæmdir við tjaldsvæði í Neskaupstað.
24.
Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um stöðuleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfi.
25.
Byggingarleyfi Skólavegur 50A, viðbygging 750 Fásk
Umsókn um byggingarleyfi Skólavegur 50A. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhuguð byggingaráform og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
26.
Grenndarkynning Strandgata 33, 735 Eskifjörður
Grenndarkynning Strandgata 33, 735 Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna áformin fyrir Strandgötu 31, 33a, 35, 35a og Bleiksárhlíð 56 og 58.
27.
Lífúrgangur á Austurlandi
Lagt fram minnisblað frá skipulags- og umhverfisfulltrúa um stöðu lífúrgangs í Fjarðabyggð í október 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram.