Skipulags- og framkvæmdanefnd
71. fundur
19. október 2026
kl.
15:30
-
17:40
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Kristinn Þór Jónasson
varaformaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
aðalmaður
Húnbogi Sólon Gunnþórsson
aðalmaður
Hafþór Eiríksson
aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Erla Margrét Gunnarsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Erla Margrét Gunnarsdóttir
Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Yfirlýsing til Bæjarráðs Fjarðabyggðar v. mögulegrar úthlutunar á lóð í Kvíabólsfjörunni
Mál tekið inn með afbrigðum. Hafþór víkur af fundi undir þessum lið.
Vísað frá bæjarráði til skipulags- og framkvæmdanefndar erindi frá Bærinn okkar vegna uppbyggingar í Kvíabólasfjöru í Neskaupstað, ásamt uppfærðri framkvæmdaáætlun.
Skipulags- og framkvæmdanefnd tók fyrir erindi um uppbyggingu Baðstofu í Kvíabólsfjöru á 69. fundi sínum þann 22.september. Nefndin bókaði að starfsmanni væri falið að ræða við forsvarsmenn Bærinn okkar og kalla eftir framkvæmdaáætlun til að leggja fyrir á næsta fundi. Ákveðið var á þeim fundi að fresta umsókn Guðröðar Hákonarsonar um lóðina í ljósi fyrri viðræðna við baðstofuhópinn.
Á 70.fundi nefndarinnar þann 12.október var tekin fyrir framkvæmdaáætlun frá Bærinn okkar, nefndin taldi áætlunina ekki fullnægjandi og var því ákveðið að úthluta lóðinni til Guðröðar Hákonarsonar sem hafði formlega sótt um lóðina þann 31.júlí 2026.
Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir innsend gögn en nefndin stendur við fyrri ákvörðun um úthlutun lóðarinnar.

2.
Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027
Hafþór mætir aftur til fundar kl. 16:08
Farið yfir rekstaráætlun málaflokka skipulags- og framkvæmdanefndar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og felur sviðsstjóra áframhaldandi vinnu við rekstraráætlun 2027.
3.
Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2
Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi, eftir athugasemdir HMS, vegna stækkun iðnaðarsvæðis við Sævarenda á Stöðvarfirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu vegna stækkun iðnaðarsvæðis við Sævarenda á Stöðvarfirði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

4.
Snjómokstur í Fjarðabyggð 2026-2027
Farið yfir fyrirkomulag snjómoksturs í Fjarðabyggð veturinn 2026-2027.
Skipulags- og framkvæmdanefnd fór yfir fyrirkomulag snjómoksturs og felur stjórnanda þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar að uppfæra verklagsreglur í samræmi við umræður á fundinum.
Skipulags- og framkvæmdanefnd fór yfir fyrirkomulag snjómoksturs og felur stjórnanda þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar að uppfæra verklagsreglur í samræmi við umræður á fundinum.
Hilmir Ásbjörnsson yfirgefur fund kl. 17:21
5.
Framkvæmdaleyfi
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir nýtt tjaldsvæði í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
6.
Umhverfisviðurkenning 2026
Fjarðabyggð óskaði eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga ársins 2026 í tveimur flokkum, annars vegar fyrir snyrtilegustu lóð einkaaðila og hins vegar fyrir snyrtilegustu lóð fyrirtækis.
Alls bárust fimm tilnefningar í flokknum snyrtilegasta lóð einkaaðila og tvær tilnefningar í flokknum snyrtilegasta lóð fyrirtækis.
Hér er lagt fram minnisblað skipulags- og umhverfisfulltrúa.
Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar innsendar tilnefningar. Nefndin var einróma um val á umhverfisviðurkenningu í hvorum flokki fyrir sig og felur skipulagsfulltrúa að hafa samband við tilheyrandi aðila.

7.
Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um 20 feta gám á gámasvæði Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfissamning.
8.
Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um stöðuleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfissamning.
9.
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026
Fundargerð 193. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
10.
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026
Meðfylgjandi er 194. fundargerð Heilbrigðisnefndar Austurlands. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.