Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdanefnd

72. fundur
3. nóvember 2026 kl. 15:00 - 16:50
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Kristinn Þór Jónasson varaformaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Húnbogi Sólon Gunnþórsson aðalmaður
Hafþór Eiríksson aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Erla Margrét Gunnarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Erla Margrét Gunnarsdóttir Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027
Málsnúmer 2606170
Farið yfir rekstrar og fjárfestingaráætlun 2027. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða rekstar og fjárfestingaráætlun 2027-2030.
2.
Nesskóli - viðgerð á þaki
Málsnúmer 2610228
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögur í framlögðu innra vinnuskjali fyrir sitt leyti og vísar erindinu til bæjarráðs.
3.
Deiliskipulag, Dalur 3 - Eskifirði - íbúðasvæði
Málsnúmer 2303020
Lögð fram vinnslutillaga á nýju deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð innan þéttbýlismarka Eskifjarðar ásamt tjaldsvæði, Dalur 3. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar afgreiðslu vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi og felur skipulagsfulltrúa að láta uppfæra vinnslutillögu í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir nefnd að nýju.
4.
Gjaldskrá fyrir urðun úrgangs 2027
Málsnúmer 2609254
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Tillaga að uppfærslu gjaldskrár vísast að aflokinni umfjöllun nefndar til bæjarráðs ásamt minnisblaði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
5.
Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna 2027
Málsnúmer 2610013
Sótt var um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða annars vegar fyrir næsta áfanga verklegrar uppbyggingar við Búðarárfoss og hins vegar fyrir frumhönnun og deiliskipulagi við Beljanda.

Umsóknirnar eru í samræmi við þá áherslu sveitarfélagsins að hafa á hverjum tíma eitt verkefni í hönnun og annað í verklegri framkvæmd. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
6.
Móttaka á lífrænum matarúrgangi
Málsnúmer 2608138
Lagt fram til kynningar tölvupóstur frá Kristjáni Ólafssyni framkvæmdastjóra Moltu varðandi móttöku matarleifa frá Múlaþingi og Fjarðabyggð ásamt skilmálum og gjaldskrá Moltu fyrir árið 2027. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
7.
Skipulagsdagurinn 2026
Málsnúmer 2610246
Lagt fram til kynningar dagskrá Skipulagsdagsins 2026, sem haldinn verður fimmtudaginn 5. nóvember. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og felur skipulagsfulltrúa að fara á Skipulagsdaginn 2026.
8.
Rannsóknaráðstefna 6. nóvember
Málsnúmer 2610221
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2026 verður haldin föstudaginn 6. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica við Suðurlandsbraut, kl. 09.00-16.30. Þar verða kynnt fjölbreytt rannsóknarverkefni á sviði samgangna, mannvirkja, umhverfis og náttúruvár. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.