Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdanefnd

73. fundur
12. nóvember 2026 kl. 12:05 - 13:15
í fjarfundi
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Kristinn Þór Jónasson varaformaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Húnbogi Sólon Gunnþórsson aðalmaður
Hafþór Eiríksson aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Erla Margrét Gunnarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Erla Margrét Gunnarsdóttir Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2027
Málsnúmer 2611039
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Tillaga að uppfærslu gjaldskrár vísast að aflokinni umfjöllun nefndar til bæjarráðs ásamt minnisblaði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
2.
Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2027
Málsnúmer 2609230
Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2026. Tillaga að uppfærslu gjaldskrár vísast að aflokinni umfjöllun nefndar til bæjarráðs ásamt minnisblaði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
3.
Ósk um malbikun við Hlíðargötu 3a, 5 og 5a - Neskaupstaður
Málsnúmer 2611030
Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við íbúa við Hlíðargötu 3a, 5 og 5a.
4.
Umsókn um lóð Árdalur 15
Málsnúmer 2610198
Umsókn um lóð, Árdalur 15, 735 Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarhúthlutunina á grundvelli gildandi deiliskipulags og vísar henni til bæjarráðs.
5.
Umsókn um lóð Árdalur 17
Málsnúmer 2610197
Umsókn um lóð, Árdalur 17, 735 Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarhúthlutunina á grundvelli gildandi deiliskipulags og vísar henni til bæjarráðs.
6.
Óverulega breyting á deiliskipulagi Dalur 2, Árdalur 17
Málsnúmer 2610135
Óveruleg breyting á Deiliskipulagi Dalur 2, Eskifirði - Árdalur 17.
Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna fyrir Árdal 19 og leggja fyrir nefnd að nýju.
7.
Erindi íbúa varðandi leikvöll í Neskaupstað
Málsnúmer 2611084
Skipulags- og framkvæmdanefnd fagnar framtakinu og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram með umsækjanda.
8.
Neskaupstaður - Miðbæjartorg
Málsnúmer 2611083
Farið yfir teikningar varðandi frágang á gangstétt innan við Safnahúsið. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
9.
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026
Málsnúmer 2602149
Meðfylgjandi er 194. fundargerð Heilbrigðisnefndar Austurlands. Kynnt.