Fara í efni

Stjórn menningarstofu

41. fundur
1. september 2026 kl. 14:30 - 18:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Birgir Jónsson formaður
Tanja Tómasdóttir varaformaður
Júlíus Óli Jacobsen aðalmaður
Arndís Bára Pétursdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Verkefni menningarstofu 2026
Málsnúmer 2602053
Verkefnastjóri safna í menningarstofu og umsjónarmaður safna fóru yfir framgang áætlunar um uppbyggingu og viðurkenningu safna ásamt reynslu af safnastarfi á liðnu sumri.
2.
Samhæfing safna Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2505090
Þóra Björk Ólafsdóttir kynnti starfsemi Safnaráðs og úthlutanir Safnasjóðs. Farið verður yfir stöðu og framtíð safna Fjarðabyggðar með hliðsjón af fimm ára áætlun um uppbyggingu þeirra.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2027
Málsnúmer 2603195
Fjallað um áherslu í starfsemi fyrir árið 2027 og stöðu rekstrar menningarmálaflokksins.
Stjórn felur bæjarritara að hefja vinnu við útfærslu fjárhagsáætlunar á forsendum rammaúthlutunar og umræðu á fundinum og leggja niðurstöður fyrir fund stjórnar.
4.
Umsókn í Húsafriðunarsjóð 2025 - Viðhald á Randúlffssjóhúsi
Málsnúmer 2511235
Framlögð til kynningar úthlutun Húsafriðunarsjóðs til endurbóta þaks Randulffssjóhúss.
Skipulags- og framkvæmdasvið er með framkvæmd verksins.
5.
Úttekt á hljóðkerfum Eskifjarðarkirkju og Egilsbúðar
Málsnúmer 2608270
Forstöðumaður fór yfir úttekt Exton á hljóðkerfum Eskifjarðarkirkju og Egilsbúðar.
Stjórn felur forstöðumanni menningarstofu að vinna áfram að málinu.
6.
Samningur um húsnæði Tónlistarmiðstöðvar Austurlands
Málsnúmer 2608283
Fjallað um samning Fjarðabyggðar og Sóknarnefndar Eskifjarðarkirkju um afnot og þjónustu í Tónlistarmiðstöð.
Stjórn felur formanni ásamt bæjarritara og forstöðumanni að funda með sóknarnefnd um efni samnings og leggja niðurstöður fyrir fund stjórnar.
7.
Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Málsnúmer 2510108
Frá fyrri fundi stjórnar til umfjöllunar hugmyndavinna vegna sýningarhönnunar og sýningarstjórnunar ásamt fjárhagsáætlun sýningargerðarinnar.
Stjórn vísar fjármögnun sýningarinnar til bæjarráðs og mögulegrar viðaukagerðar vegna framkvæmdarinnar.
8.
Uppbygging annars áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
Málsnúmer 2607073
Farið yfir framgang annars áfanga og tímasetningar vegna afhendingar á húsnæði en kostnaðargreining verkefnis verður lögð fram á næsta fundi.