Stjórn menningarstofu
43. fundur
5. október 2026
kl.
16:00
-
17:45
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Birgir Jónsson
formaður
Bjarney Birta Bergsdóttir
varamaður
Júlíus Óli Jacobsen
aðalmaður
Arndís Bára Pétursdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Gunnar Jónsson
embættismaður
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
bæjarritari
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2027
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun fyrir menningarmálaflokkinn vegna ársins 2027.
Stjórn samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim áfram til fjárhagsáætlunargerðar 2027.
Stjórn samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim áfram til fjárhagsáætlunargerðar 2027.
2.
Gjaldskrá félagsheimila 2027
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá félagsheimila samhliða fjárhagsáætlunargerð.
Stjórn samþykkir að gjaldskrá hækki um 2,5% og taki gildi 1. janúar 2027. Gjaldskrá er vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Stjórn samþykkir að gjaldskrá hækki um 2,5% og taki gildi 1. janúar 2027. Gjaldskrá er vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
3.
Gjaldskrá safna 2028
Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá safna samhliða fjárhagsáætlunargerð.
Stjórn samþykkir að gjaldskrá hækki um 2,5% og taki gildi 1. janúar 2028. Stjórn áréttar að ársmiði í söfn Fjarðabyggðar gildir innan almanaksársins.
Gjaldskrá er vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Stjórn samþykkir að gjaldskrá hækki um 2,5% og taki gildi 1. janúar 2028. Stjórn áréttar að ársmiði í söfn Fjarðabyggðar gildir innan almanaksársins.
Gjaldskrá er vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
4.
Samningur um húsnæði Tónlistarmiðstöðvar Austurlands
Fjallað áfram um samning Fjarðabyggðar og Sóknarnefndar Eskifjarðarkirkju um afnot og þjónustu í Tónlistarmiðstöð í kjölfar fundar formanns og forstöðumanns menningarstofu með sóknarnefnd. Vísað til áframhaldandi vinnu um endurskoðun samnings.
5.
Ástandsskoðun Safnahússins í Neskaupstað
Framlögð til kynningar ástandsskoðun á Safnahúsinu í Neskaupstað. Hafnarstjórn er með málið til úrvinnslu og greiningar á kostnaði vegna endurbóta húsnæðisins.
6.
Boð um gjöf á safngripum til stríðsárasafns
Framlagt minnisblað um safngripi sem boðnir eru Íslenska stríðsárasafninu að gjöf. Baldur J Baldursson hefur boðið safninu að gjöf fatnað sem tengist stríðsárunum og hernáminu.
Stjórn menningarstofu samþykkir að þiggja góðar gjafir og færir Baldri bestu þakkir fyrir þær.
Stjórn menningarstofu samþykkir að þiggja góðar gjafir og færir Baldri bestu þakkir fyrir þær.
7.
Þjóðaróperan 2026 - samstarf
Lögð fram tillaga að viljayfirlýsingu milli Menningarstofu og Þjóðaróperunnar um undirbúning samstarfs við Þjóðaróperuna um stærri sýningar og árlegt fræðsluverkefni í Fjarðabyggð.
Stjórn tekur vel í yfirlýsinguna og felur bæjarritara og forstöðumanni að vinna hana áfram og leggja fyrir næsta fund stjórnar til samþykktar.
Stjórn tekur vel í yfirlýsinguna og felur bæjarritara og forstöðumanni að vinna hana áfram og leggja fyrir næsta fund stjórnar til samþykktar.