Stjórn menningarstofu
44. fundur
21. október 2026
kl.
14:00
-
15:25
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Birgir Jónsson
formaður
Tanja Tómasdóttir
varaformaður
Júlíus Óli Jacobsen
aðalmaður
Arndís Bára Pétursdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir
embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson
sviðstjóri mannauðs- og umbótasviðs.
Dagskrá
1.
Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Lagt fram minnisblað um faghópasamráð vegna endurnýjunar menningarstefnu Fjarðabyggðar. Forstöðumaður menningarstofu gerði grein fyrir helstu áherslum fjögurra samráðsfunda sem haldnir voru í september og næstu skrefum í stefnuvinnunni.
Stefnt er að birtingu á drögum til íbúasamráðs fyrir lok árs 2026 og útgáfu stefnunnar í byrjun árs 2027.
Stjórn menningarstofu þakkar fyrir yfirferðinna og felur forstöðumanna, og starfsfólki menningarstofu að halda áfram með vinnuna, og leggja málið fyrir að nýj

2.
Pólsk kvikmyndahátíð í Fjarðabyggð - 2026 (6. skipti)
Lagt fram minnisblað um sjöttu Pólsku kvikmyndahátíðina í Fjarðabyggð, sem fór fram í Valhöll á Eskifirði dagana 16. - 18. október 2026. Hátíðin var unnin í samstarfi listræns stjórnanda, Rafals Jan Koczanowicz, Menningarstofu Fjarðabyggðar og Valhallar. Á dagskrá voru tólf kvikmyndir í sjö sýningarlotum og ein kvikmyndasmiðja. Skráðar voru samtals 236 heimsóknir á viðburði hátíðarinnar. Aðgangur var ókeypis og allar myndir sýndar með enskum texta.
Stjórn menningarstofu þakkar fyrir kynninguna, og fagnar því hve vel hefur til tekist við uppbyggingu hátíðarinnar.
Stjórn menningarstofu þakkar fyrir kynninguna, og fagnar því hve vel hefur til tekist við uppbyggingu hátíðarinnar.
3.
Víkurvaki - Áhersluverkefni í tónlistaruppbyggingu 2026 með Frystihúsinu á Breiðdalsvík
Forstöðumaður kynnir niðurstöður Víkurvaka, áhersluverkefnis Menningarstofu Fjarðabyggðar árið 2026, sem unnið var í samstarfi við Frystihúsið á Breiðdalsvík.
Stjórn menningarstofu þakkar fyrir kynninguna, fagnar því að vel hafi tekist upp með Víkurvaka 2026, og hve vel tókst upp með nálgun Menningarstofu að verkefninu.
Stjórn menningarstofu þakkar fyrir kynninguna, fagnar því að vel hafi tekist upp með Víkurvaka 2026, og hve vel tókst upp með nálgun Menningarstofu að verkefninu.
4.
2. áfangi Eftirlit safnaráðs með viðurkenndum söfnum - Sjóminjasafn Austurlands
Lögð fram stöðuskýrsla um úrbætur við Sjóminjasafn Austurlands vegna annars hluta eftirlits Safnaráðs með viðurkenndum söfnum. Gerð er grein fyrir úrbótum sem þegar hafa verið framkvæmdar og fyrirhuguðum aðgerðum í varðveislu- og sýningarrýmum safnsins.
Stjórn menningarstofu þakkar fyrir yfirferðina.
Stjórn menningarstofu þakkar fyrir yfirferðina.
5.
Þjóðaróperan 2026 - samstarf
Lögð fram drög að viljayfirlýsingu Fjarðabyggðar og Þjóðaróperunnar um áframhaldandi samstarf í kjölfar sýningarinnar Undir sömu stjörnu. Markmiðið er að efla aðgengi að óperulist á Austurlandi með árlegu fræðsluverkefni og annarri stórri sýningu á næstu árum, ásamt því að styrkja innviði tónlistarstarfs og starfsþróunartækifæri tónlistarfólks á svæðinu.
Stjórn menningarstofu samþykkir fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingu Fjarðabyggðar og Þjóðaróperunnar og felur forstöðumanni Menningarstofu undirritun hennar í tengslum við samstarfsverkefni Þjóðaróperunnar og Menningarstofu , "Undir sömu stjörnu", sem verður í Eskifjarðarkirkju sunnudaginn 25. október kl. 15:00.