Fara í efni

Ungmennaráð

27. fundur
9. nóvember 2026 kl. 16:30 - 17:30
að Búðareyri 2, fundarherbergi 1
Nefndarmenn
Victoria Rut Nguyen Smáradóttir aðalmaður
Eva Sól Heimisdóttir aðalmaður
Sara Antonía Friðþjófsdóttir aðalmaður
Brynhildur K. Valbjörnsdóttir aðalmaður
Erlendur Jörgen Kristinsson aðalmaður
Gunnhildur Anna Birgirsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Hrafnhildur Ásta Njálsdóttir embættismaður
Eygló Rut Hákonardóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Eygló Rut Hákonardóttir
Dagskrá
1.
Áhrifadagar ungmenna 2026 - Barnvænt samfélag
Málsnúmer 2611070
Sagt frá hvað fór fram á Áhrifadögum ungmenna. Þær unnu sérstaklega með tómstundir og þátttöku. Lausnin var að gera tómstundir lögbundnar. Annað stórt málefni var geðheilbrigði ungmenna. Þau hittu ungmenni úr ungmennaráðum frá öllu landinu. Þar var rætt hvernig hægt væri að gera ungmennaráð sýnilegri og áhrifaríkari í samfáleginu.

Stýrihópur fyrir barnvænt samfélag ræddur. Óskað er eftir ungmennum úr ungmennaráði í stýrihópinn. Þau munu skiptast á að taka þátt í stýrihópnum, tvö í hvert skipti.
2.
Fræsla fyrir skrifstofu Fjarðabyggðar um ungmennaráð
Málsnúmer 2611071
Rætt mikilvægi þess að starfsfólk viti af Ungmennaráðinu og nýti þau og þeirra sýn.
Ungmennaráð stefnir á að fara í skólana og kynna mikilvægi og hlutverk þeirra.




Upplifun ungmenna frá Eskifirði er að krakkar og kennarar frá Reyðarfirði séu mótfallnir því að ungmennin séu að nýta þeirra íþróttahús.

Önnur mál sem komu til umræðu
- Andvökunótt/gistinótt
Ungmennaráð er spennt fyrir að halda það á fásk eða rey í íþróttahúsinu
Væri gaman að nota skjáinn sem er á rey, til að fara í just dance eða kareoke

- Mætingarstig
Mikilvægt að tekið sé inn í myndina íþróttakrakka sem mæta þegar þau geta í féló og langar að komast á samfés en ná ekki jafn góðri mætingu og aðrir

Rætt lokaball og samfés, Lokaballið er sett 6. maí og samfés 8.
- Væri gott að færa lokaballið á annan tíma

Sameiginlegar opnanir:
- Ungmennunum langar að hafa féló opnun í Oddsskarði
- Möguleikar í Sköpunarmiðstöðinni

Verkmenntaskóli Austurlands
Mættu þau fá höllina á Reyðarfirði 1 skipti í mánuði ?

tónlistarfólk á böllum sem ungmenni eru spennt fyrir
- Jói Pé og Króli
- Tónhylur
- ÚlfurÚlfur
DJ-ar :
3.
Ástand á félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2611072
Atom:
Mjög góð staðsetning og krakkarnir almennt ánægðir með staðinn. Poolborðið er ónýtt. Mikið um gamla sófa. Áhugi fyrir að breyta og taka sviðið sem er pullusvæði. Spaðarnir í pingpong eru orðnir lélegir.

Knellan:
Aðstaðan er alls ekki nógu góð.
- Gólfin skítug og ónýt
- Göt í loftinu
- Gluggarnir eru orðnir ónýtir
- Eitt poolborðið er ónýtt, reglulega er brotið kjuðana
- Þörf fyrir að mála
- Sófi í sjónvarpsherbergi er brotinn og hættulegur
- Stiginn er skítugur
- Klósettin eru skítug
- Vatnið úr vöskunum er gult og rautt
- Oft er kalt því ofnarnir eru lélegir
- Vilja örbylgjuofn og föndurdót
- Ljósin virka ekki nema að kýlt sé í þau-
- Vilja sjá nýtt gólf
- Leðursófarnir eru klístraðir
- Þarf að henda ísskápnum og kaupa skóhillur.
- Myndu vilja meiri borð og stóla til að til dæmis spila eða föndra
- Vantar nýjar pílur. Þarf að fjarlægja gamla hurð sem er uppi. Þarf að læsa í Valhöll.

Zveskjan
- Brúnt vatn kemur úr vöskum úr kk baði
- Ekki nóg að hafa bara eitt klósett inn á kk baði
- Sófarnir uppi eru gamlir
- Ofnarnir lélegir - mjög kalt uppi
- Fúkkalykt í allri zveskjunni
- vantar píluspjald
- athuga hvort sé mygla

Æskó
- Nokkuð gott ástand
- sumir sófar eru brotnir
- Mætti bæta umgengni ungmennanna

Prízund og Stöðin
- Vantar starfsfólk

ALmennt:
- vantar fjölbreyttari dagskrá
- vantar pening fyrir fjölbreyttari dagskrá

Ungmennaráð óskar eftir að þetta mál sé lagt fyrir fjölskyldunefnd