Bæjarráð
246. fundur
26. maí 2011
kl.
16:00
-
18:00
Stöðvarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Aðalfundur Menningarráðs Austurlands 2011
Aðalfundur Menningarráðs Austurlands verður haldinn 14.júní á Djúpavogi. Kosið verður til stjórnar. Bæjarráð tilnefnir Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur og Davíð Baldursson sem aðalmenn í stjórn ráðsins og Ágúst Ármann Þorláksson og Þórönnu Lilju Snorradóttur til vara.
2.
Tómar íbúðir á Austurlandi 2011 - ósk um viðræður
Bréf Sigurjóns Bjarnasonar og Ásmundar Ásmundssonar frá 16.maí er varðar hugmyndir um nýtingu íbúða á Austurlandi sem ekki er búið í. Lagt er til í bréfinu að teknar verði upp viðræður við stjórn Íbúðalánasjóðs um stofnun eignarhaldsfélags um óseldar íbúðir í eigu sjóðsins á Austurlandi. Bæjarráð Fjarðabyggðar hvetur til þess að teknar verði upp viðræður Íbúðalánasjóðs við aðila á Austurlandi um stofnun eignarhaldsfélags um óseldar íbúðir sjóðsins á Austurlandi. Markmið félagsins verði að bæta nýtingu íbúðanna, þannig að þær skili eigendum sínum arði og efli um leið nærliggjandi samfélag.
3.
Ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn 2011
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Bæjarráð tekur undir ályktun félagsmálanefndar frá 16.maí og barnaverndarnefndar Fjarðabyggðar vegna tímabundinnar ókeypis tannlæknaþjónustu fyrir börn. Jafnframt lýsir bæjarráð yfir áhyggjum af ferðakostnaði þar sem þjónusta er einungis veitt í Reykjavík.
4.
Girðing utan um Kolfreyjustaðarkirkjugarð
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Bréf Kolfreyjustaðarprestakalls frá 20.maí þar sem áréttuð er ósk um að Fjarðabyggð greiði girðingarefni í kringum kirkjugarðinn á Kolfreyjustað. Erindi vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
5.
Árgjöld sveitarfélaga til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Framlagt minnisblað stjórnsýslustjóra frá 24.maí. Vinna við endurskipulagningu stoðstofnana er komin vel áleiðis en ekki sér fyrir endanlega hagræðingu. Úthlutunarfundur sjóðsins er í vikunni. Bæjarráð er sammála að greiða 2/3 af framlagi til sjóðsins sem takist af liðnum óráðstafað. Ákvörðun um greiðslu eftirstöðva frestað samkvæmt fyrri bókunum um málið.
6.
Snjóflóðavarnir í Fjarðabyggð
Framlögð drög að samnningi um ofanflóðavarnir við Nýjabæjarleik á Fáskrúðsfirði og tillaga mannvirkjastjóra frá 26.maí. Bæjarráð samþykkir framlögð drög að samningi milli Fjarðabyggðar og Framkvæmdasýslu ríkisins vegna frumathugunar á ofanflóðavörnum við Nýjarbæjarlæk á Fáskrúðsfirði. Bæjarráð felur mannvirkjastjóra jafnframt undirritun samningsins.
7.
Ársfundur Byggðastofnunar 2011
Ársfundi Byggðastofnunar hefur verið frestað um óákveðinn tíma en hann var fyrirhugaður í dag miðvikudaginn 25.maí í Vestmannaeyjum.
8.
Vinnuskóli og sumarvinna 2011 - fyrirkomulag
Minnisblað mannvirkjastjóra frá 24.maí um ráðningu í sumarstörf hjá mannvirkja- og umhverfissviði. Búið er að ganga frá ráðningarsamningum við alla sumarvinnustarfsmenn sem gert var ráð fyrir við gerð fjárhagsáætlunar 2011. Um er að ræða 26 störf - 11 flokksstjórastörf og 15 almenn sumarstörf. Auk þess verða 191 grunnskólanemi við vinnu í vinnuskóla í sumar. Ákvörðun um frekari ráðningar frestað til næsta fundar.
9.
Aðalfundur Þróunarfélags Austurlands 2011
Aðalfundur Þróunarfélags Austurlands verður haldinn 30.maí kl. 10:00 í Fróðleiksmolanum Reyðarfirði. Kosið verður til stjórnar. Bæjarráð tilnefnir Pál Björgvin Guðmundsson sem aðalmann í stjórn og Gunnlaug Sverrisson til vara. Páll Björgvin Guðmundsson verður fulltrúi Fjarðabyggðar á aðalfundi.
10.
Aðalfundur Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 2011
Aðalfundur Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands verður haldinn 30.maí kl. 16:00 í Fróðleiksmolanum Reyðarfirði. Kosið verður til stjórnar. Bæjarráð tilnefnir Pál Björgvin Guðmundsson, Lars Gunnarsson og Sigurð Hólm Freysson sem aðalmenn í stjórn og Gunnlaug Sverrisson, Ormarr Örlygsson og Elvar Jónsson til vara. Páll Björgvin Guðmundsson verður fulltrúi Fjarðabyggðar á aðalfundi.
11.
Launahækkanir í kjarasamningum
Minnisblað mannauðsstjóra frá 26.maí lagt fram til kynningar
12.
Deiliskipulag vegna jarðarinnar Fannardals
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Lagt fram minnisblað Hilmars Gunnlaugssonar hrl. vegna málsins. Farið yfir drög að svarbréfi mannvirkjastjóra til Guðröðar Hákonarsonar landeiganda jarðarinnar Fannardals. Bæjarráð samþykkir drög að svari og felur mannvirkjastjóra að svara landeiganda.
13.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
Fundargerðir félagsmálanefndar nr.13 og nr.14 frá 4.maí og 16.maí lagðar fram.