Bæjarráð
248. fundur
15. júní 2011
kl.
08:30
-
11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
mannauðsstjóri
Dagskrá
1.
Vinnuskóli og sumarvinna 2011 - fyrirkomulag
Lögð fram tillaga mannvirkjastjóra um viðbótarráðningu sumarstarfsmanna.
Bæjarráð samþykkir að ráða aukalega 7 starfsmenn sem sóttu um sumarstörf hjá Fjarðabyggð en fengu ekki vinnu í ráðningarferlinu, en um er að ræða 17 og 18 ára einstaklinga, þ.e. fædd árin 1994 og 1993. Starfsmenn munu fara í sumarstörf sem skipulögð verða á mannvirkja- og umhverfissviði. Ráðningartími hvers starfsmanns skal vera allt að 8 vikur og mun vera leitað leiða til að kostnaður sem verður til rúmist innan fjárheimilda. Áætlaður kostnaður er um 3 milljónir kr.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
2.
Safnahúsið í Neskaupstað
Á fundinn er mættur Pétur Sörensson forstöðumaður safnastofnunar.
Rætt um málefni Safnastofnunar.
3.
Fundagerðir Sambands sveitarfélaga á Austurlandi árið 2011
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
4.
Nýjir íbúar og borttfluttir í Fjarðabyggð
Lagt fram til kynningar.
5.
Breytinar á samþykktum Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar
Bæjarráð vísar samþykktunum til staðfestingar bæjarstjórnar.
6.
Björgunarklippur
Fram lagt minnisblað slökkviliðsstjóra um kaup á björgunarklippum. Kostnaður er um 4,4 milljónir kr.
Bæjarráð samþykkir tillögum slökkviliðsstjóra um kaup á klippunum og kostnaður rúmist innan fjárhagsáætlunar.
7.
Starfshópur um skólamál í Fjarðabyggð
Lagt fram minnisblað fræðslustjóra um störf vinnuhóps um skipan fræðslumála í Fjarðabyggð. Lagt er til að starfstími hópsins verði framlengdur til 1. október 2011.
Bæjarráð samþykkir framlenginguna sbr. tillöguna.
8.
Fræðslu- og frístundanefnd - 14
Fundargerðin fram lögð og kynnt.