Fara í efni

Bæjarráð

251. fundur
6. júlí 2011 kl. 16:00 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf
Málsnúmer 1104081

Fjármálastjóri var í símasambandi við fundinn og fór yfir minnisblað sitt frá 6.júlí. Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur fengið kynningu á hugmyndum að rammasamkomulagi sem mögulega kann að nást á milli Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. "Fasteign", lánardrottna félagsins, hluthafa og leigutaka. Bæjarráð samþykkir að haldið verði áfram samningsumleitunum á þeim forsendum  sem lagðar eru til grundvallar, með það að markmiði að ganga frá samningum í samræmi við þær.

2.
Kynning á þjónustu Centra fyrirtækjaráðgjafar fyrir sveitarfélög
Málsnúmer 1106189
Bréf frá 28.júní er varðar kynningu Centra fyrirtækjaráðgjafar á þjónustu fyrirtækisins. Vísað til fjármálastjóra.
3.
Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 1104080
Frá síðasta fundi. Framlögð ýmis gögn er snúa að Franska spítalanum, læknisbústaðnum og safninu Fransmenn á Íslandi. Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
4.
Fyrirspurn um umhverfismál á Reyðarfirði
Málsnúmer 1106170
Bréf Ásmundar Ásmundssonar frá 24.júní er varðar slæma ásýnd í umhverfismálum á Reyðarfirði meðfram Ægisgötu að norðanverðu frá hringtorgi að brú yfir Búðará. Vísað til mannvirkjastjóra og umfjöllunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
5.
Útgjaldamælingarkerfi
Málsnúmer 1107007
Unnið er að endurskoðun á gildandi laga- og reglugerðarákvæðum um Jöfnunarsjóð.  Fjarðabyggð hefur verið valið til þátttöku í vinnu við endurskoðunina og óskað er eftir leyfi til að styðjast við aðalbók vegna reksturs Fjarðabyggðar á árinu 2010. Bæjarráð veitir fjármálastjóra heimild til að gefa umbeðnar upplýsingar. 
6.
Skýrslan "Austurland - Austfirzk eining"
Málsnúmer 1107005
Skýrslan "Austurland - Austfirsk eining" lögð fram til kynningar. Skýrsluhöfundur Ólafur Áki Ragnarsson starfsmaður Þróunarfélags Austurlands leggur til að skýrslan verði tekin til umfjöllunar í sveitarstjórnum á Austurlandi og vísað að því loknu til umræðu og afgreiðslu á aðalfundi SSA. Bæjarráð vísar skýrslunni til fyrsta fundar í bæjarstjórn eftir sumarfrí 1.september nk.
7.
Aðalfundur Fjarðaferðar ehf 2011 v.2010
Málsnúmer 1106131


Bæjarstjóri gerði grein fyrir aðalfundi Fjarðaferða sem haldinn var 29.júní. Lagður fram ársreikningur Fjarðaferða ehf. fyrir árið 2010. 
8.
Austfirsk eining - Fundargerðir 2011
Málsnúmer 1104025
Fundargerð Austfirskrar einingar nr. 7 frá 28.júní lögð fram.
9.
Afmælisveisla ÚÍA - 9.júlí 2011
Málsnúmer 1107010
<DIV><P>Afmælisveisla ÚÍA vegna sjötíu ára afmælis sambandsins verður haldin í Tjarnargarðinum Egilsstöðum laugardaginn 9.júlí frá kl. 17:00 - 19:00. Bæjarráð samþykkir að styrkja ÚÍA um 250.000 kr. vegna 14. unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður á Egilsstöðum 29. - 31.júlí og í tilefni af sjötíu ára afmæli sambandsins. Tekið af liðnum óráðstafað 21-69-.  Fulltrúi frá bænum mun sækja afmælisveisluna. </P></DIV>
10.
Gerð skýrslu um áhrif í Fjarðabyggð vegna tillagna að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Málsnúmer 1106101
Málið áður á dagskrá bæjarráðs 22.júní.  Lagður fram samningur við KPMG um gerð skýrslu um áhrif í Fjarðabyggð vegna tillagna að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Bæjarráð samþykkir samninginn. 
11.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
Málsnúmer 1101152
Fundargerð félagsmálanefndar nr.15 frá 30.maí og nr.16 frá 14.júní lagðar fram.
12.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011
Málsnúmer 1101153
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 14 frá 27.júní lögð fram.
13.
Hafnarstjórn - 85
Málsnúmer 1106013F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 85 frá 28.júní lögð fram.
Rætt um málefni Sparisjóðs Norðfjarðar.