Bæjarráð
254. fundur
16. ágúst 2011
kl.
08:30
-
12:00
í þjónustumiðstöðinni í Neskaupstað
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Fjármál 2011
Þennan dagskrárlið sat Björgvin Valdimarsson fjármálastjóri og kynnti hann frávikagreiningu fyrir sveitarsjóð fyrstu sex mánuði ársins. Jafnframt mættu á fundinn fræðslustjóri og slökkviliðsstjóri og fóru þeir yfir frávik í rekstri sinna málaflokka.
2.
Gerð skýrslu um áhrif í Fjarðabyggð vegna tillagna að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Þennan dagskrárlið fundar sátu Flosi Eiríksson og Sigurjón Örn Arnarson frá KPMG og kynntu þeir drög að skýrslu um áhrif minna kvótafrumvarpsins á Fjarðabyggð.
3.
Aðalfundur SSA 2011
Aðalfundurinn haldinn að Hallormsstað 30. september og 1. október n.k. Fram lagt og kynnt.
4.
Gjaldskrá fyrir ótryggða orku
Bæjarráð samþykkir tillögu um hækkun.
5.
Breyting á gjaldskrá fjarvarmaveitu
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri. Farið yfir tillögu að hækkun gjaldskrár.
Bæjarráð samþykkir tillögu um hækkun.
6.
Þakviðgerðir á Nesbakka 1-11 740
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu í minnisblaði og vísar tillögunni til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
7.
Íþrótta- og skólaakstur 2011
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.
Bæjarráð samþykkir að gjaldskrá fyrir skólaakstur í Verkmenntaskóla Austurlands verði óbreytt fram til 31.12.2011
8.
Jarðhitaleit í Fjarðabyggð
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.
Farið yfir stöðu jarðhitaleitar í Fjarðabyggð og verksamning um jarðhitaleit.
Bæjarráð samþykkir verksamninginn.
9.
Bréf frá formanni íþróttafélgsins Þróttar, Neskaupstað
Bréf lagt fram til kynningar en það fjallar um ýmsar úrbætur vegna aðstöðumála.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til umfjöllunar fræðslu- og frístundanefndar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar í tengslum við gerð fjárhagsáætlana.
10.
Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.
Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að heimila Framkvæmdasýslu ríkisins fyrir hönd Velferðarráðuneytisins og Fjarðabyggðar að bjóða út byggingu á nýju hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð, staðsett að Dalbraut 1 á Eskifirði. Ráðgert er að hefja framkvæmdir haustið 2011 og að þeim ljúki vor / sumar 2013.
Jafnframt er mannvirkjastjóra heimilað að vinna að lóðarmálum til samræmis við minnisblað um lóðarmál fyrir hjúkrunarheimilið.
11.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 24
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd nr. 24 frá 10. ágúst s.l. staðfest.
11.1
Ónýttur jarðhitaleitastyrkur sérstaks átaks 2008
11.2
Jarðhitaleit í Fjarðabyggð
11.3
Uppsögn Landsvirkjunar á samningum sem snúa að ótryggri orku
11.4
Hækkun á ótryggðri orku frá 1.september 2011
11.5
Gjaldskrá fyrir ótryggða orku
11.6
Breyting á gjaldskrá fjarvarmaveitu
11.7
Ósk um greinargerð um stöðu mála og framtíðaráform í fráveitumálum
11.8
Úthlutun úr styrkvegasjóði fyrir árið 2011
11.9
730 - Grenndarkynning, Kvíagilslækur
11.10
730 - Grenndarkynning, Rafstöðvarlækur
11.11
735 - Grenndarkynning, lækur innan við fótboltavöll
11.12
735 Grenndarkynning vallarhúss íþróttarvallar
11.13
Viðbygging vegna Hafnargötu 1 - grenndarkynning
11.14
Byggingarleyfi - garðhús
11.15
730 Búðargata 3 - pallur
11.16
740 Sæbakki 20 - beiðni um breytingu á lóðaskipulagi
11.17
740 Skálateigur - Sumarhús Dalland
11.18
735 Fjarðabyggð, lóðarmál að Helgafelli 5
11.19
Ágangur vatns á lóð í Árdal.
11.20
Fyrirspurn um umhverfismál á Reyðarfirði
11.21
Beiðni um að styrkja leiðbeinendanámskeið Vistverndar í verki
11.22
Þátttaka ungmenna í VII. Umhverfisþingi 14.október 2011
11.23
Vinna við gerð nýrrar byggingarreglugerðar
11.24
Vinna við gerð nýrrar reglugerðar um framkvæmdaleyfi
11.25
Gerð nýrrar skipulagsreglugerðar - Landskipulagsstefna
11.26
735 Hátún 3 - stöðuleyfi
11.28
Afgreiðslur byggingafulltrúa - 21
12.
Hafnarstjórn - 86
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 86 frá 20. júlí s.l. staðfest.
12.1
Tilkynning um ótímabundna vinnustöðvun hjá félögum í Félagi skipstjórnarmanna