Fara í efni

Bæjarráð

256. fundur
23. ágúst 2011 kl. 16:30 - 18:45
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Fjármál 2011
Málsnúmer 1108048
Þennan lið dagskrár sátu mannvirkjastjóri, félagsmálastjóri og framkvæmdastjóri hafna ásamt fjármálastjóra.  Farið í gegnum frávikagreiningu fyrstu 6 mánaða ársins.
2.
Fjárhagsáætlun 2012
Málsnúmer 1108029
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.  Fjallað um drög að tekjuáætlun ársins 2012 og aðra grunnþætti áætlunarinnar.
3.
Gerð skýrslu um áhrif í Fjarðabyggð vegna tillagna að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Málsnúmer 1106101
Þennan lið dagskrár sat framkvæmdastjóri hafna.  Lögð fram til kynningar greinargerð KPMG um áhrif breytinga laga um stjórn fiskveiða á Fjarðabyggð ásamt drögum að umsögn um frumvarp til breytinga á stjórn fiskveiða, þingmál 827, þskj. 1475. 
Bæjarráð samþykkir umsögnina og felur bæjarstjóra að undirrita hana.
4.
Framtíð félagsstarfs í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1106010
Þennan lið dagskrár sat félagsmálastjóri og kynnti hann minnisblað um félagsstarf aldraðra og tillögur sem félagsmálanefnd leggur til varðandi félagsstarf aldraðra.
Bæjarráð samþykkir tillögu tvö samanber minnisblað félagsmálastjóra og felur honum að útfæra starfsemina í samræmi við hana.
5.
Auglýst eftir umsókn um undirbúning og framkvæmd 2. landsmóts UMFÍ 50
Málsnúmer 1107099
Þennan dagskrárlið fundar sat fræðslustjóri og kynnti framkvæmd landsmótsins.  Fram lagt minnisblað um mótið og útfærslu þess.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um landsmót UMFÍ 50 ára og eldri og felur fræðslustjóra í samráði við Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands að leggja fram umsókn.
6.
Starfshópur um almenningssamgöngur
Málsnúmer 1101197
Þennan dagskrárlið sat Ásta Kristín Sigurjónsdóttir verkefnastjóri Þróunarfélagsins sem kynnti vinnu sem unnin hefur verið vegna almenningssamgangna í Fjarðabyggð.  Jafnframt sat mannvirkjastjóri fundinn.
Bæjarráð samþykkir að áfram sé unnið að verkefninu og það nánar útfært.
7.
Lagfæring á leikvelli við Dalbraut og Bogahlíð 735
Málsnúmer 1108079
Lagður fram undirskriftarlisti íbúa á Eskifirði þar sem óskað er eftir lagfæringum á leikvellinum við Dalbraut á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindi til fjárhagsáætlunargerðar 2012.
8.
Þakkir fyrir stuðning við UÍA
Málsnúmer 1108073
Fram lagt þakkabréf Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands vegna fjárframlags. Bæjarráð óskar sambandinu til hamingju með gott og vel heppnað unglingalandsmót sem haldið var um síðustu verslunarmannahelgi sem var því til sóma.   
9.
Beiðni um afhendingu jafréttisáætlunar, ásamt framkvæmdaáætlun
Málsnúmer 1108072
Bæjarráð felur félagsmálastjóra að afgreiða beiðnina.
10.
Evrópsk lýðræðisvika 10.-16. okt. nk.
Málsnúmer 1108066
Fram lagt kynningarefni um lýðræðisvikuna.
Fram lagt til kynningar.
11.
Vinna við eflingu sveitarstjórnarstigsins
Málsnúmer 0905153
Fram lagðar fyrirspurnir til sveitarfélagsins um atriði sem lúta að eflingu sveitarstjórnarstigsins.
Stjórnsýslustjóra falið að vinna drög að svörum við spurningarlista í samráði við bæjarráð.  Skilafrestur er 10. september.
12.
Fræðslu- og frístundanefnd - 15
Málsnúmer 1108001F
Til afgreiðslu bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Bæjarráð staðfestir fundargerðina.
13.
Félagsmálanefnd - 17
Málsnúmer 1108005F
Til afgreiðslu bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir fundargerðina.
14.
Hluthafafundur í Fjarðaferðum
Málsnúmer 1108089
Boðað er til hluthafafundar í Fjarðaferðum 26. ágúst n.k.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinn.
Rætt um málefni Kirkju- og menningarmiðstöðvar Austurlands.