Bæjarráð
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Bæjarráð samþykkir að vegna innleiðingar á skipulögðum almenningssamgöngum í Fjarðabyggð verði óskað eftir því að Alcoa-Fjarðaál opni starfsmannaakstur fyrir almenningi og hann falli undir sömu skilyrði og annar skipulagður akstur Fjarðabyggðar. Jafnframt verði óskað eftir að Alcoa-Fjarðaál komi að kostnaði við uppsetningu á biðskýli í Fjarðabyggð, í heildina 10 skýlum. Að fengnu samþykki Alcoa-Fjarðaáls verði eftirfarandi framkvæmt:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
...að núverandi leiðarkerfi Fjarðabyggðar verði opnað almenningi.
...að Fjarðabyggð taki að sér umsýslu og innheimtu vegna sölu korta fyrir skipulagðar samgöngur, sölu til verktaka, almennings og námsmanna 16 ára og eldri. Ungmenni 16 ára og yngri fá frítt í rútur.
...að Fjarðabyggð sjái um kynningarmál í samvinnu við Þróunarfélag Austurlands og um upplýsingagjöf til notenda, samhæfingu og skipulagningu ferða, með heimasíðu og skiptiborði.
Stefnt er að því að allar tillögur komi til framkvæmda 1. október 2011. Bæjarráð samþykkir jafnframt að leggja fram samtals 10 milljónir, á næstu þremur árum, í gerð allt að 10 biðskýla í samvinnu við Alcoa-Fjarðaál.