Bæjarráð
264. fundur
18. október 2011
kl.
16:00
-
19:00
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
stjórnsýslustjóri
Dagskrá
1.
Vatnsveita Fjarðabyggðar - vatnsból Norðfirði
Hilmar Gunnlaugsson lögmaður var í símasambandi við fundinn. Þennan lið fundarins sátu einnig mannvirkjastjóri og Guðmundur Þorgrímsson í stað Jóns Björns Hákonarsonar. Umræða um vatnstökumál í Fannardal. Lögð fram drög að svari Fjarðabyggðar til lögmanns Guðröðar Hákonarsonar. Bæjarráð samþykkir svarbréf með framkomnum breytingum.
2.
Fjárhagsáætlun 2012
Framhald umræðu um fjárhagsáætlun 2012. Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri, mannauðsstjóri og slökkviliðsstjóri. Farið yfir fjárhagsáætlun og starfsáætlun ásamt öðrum málum tengdum fjárhagsáætlunargerð. Fjármálastjóri fór yfir stöðu heildarmyndar áætlunar. Valdimar O. Hermannsson vék af fundi kl. 18:30.
3.
Styrkur til Reyðarfjarðarkirkju vegna 100 ára afmælis
Bæjarráð samþykkir að styrkja Reyðarfjarðarkirkju um kr. 150.000 vegna 100 ára afmælis kirkjunnar. Takist af liðnum óráðstafað.
4.
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2011
5.
Fundur bæjarráðs með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2011
6.
Hagsmunagæsla í úrgangsmálum - Fundur vegna sorpmála með fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Mannvirkjastjóri og bæjarstjóri munu funda með fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna verkefnisins "Hagsmunagæsla í úrgangsmálum" miðvikudaginn 26.október.
7.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2011
Fundargerðir félagsmálanefndar nr.20 frá 3.október 2011 og nr.21 frá 11.október 2011 lagðar fram.