Fara í efni

Bæjarráð

275. fundur
9. janúar 2012 kl. 08:30 - 10:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Þjónustukönnun meðal íbúa Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1111049
Niðurstöður úr þjónustukönnun fyrir Fjarðabyggð lagðar fram til kynningar.
Bæjarráð vísar könnuninni til kynningar og eftir atvikum til skoðunar hjá sviðsstjórum og nefndum.
2.
Siðareglur
Málsnúmer 1201063
Lögð fram tillaga bæjarstjóra um skipan vinnuhóps sem vinni að setningu siðareglna fyrir pólitíska fulltrúa og stjórnendur í Fjarðabyggð.
Samþykkt að vinnuhópinn skipi frá stjórnsýslu Fjarðabyggðar Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu, Esther Ösp Gunnarsdóttir frá Fjarðalista, Eiður Ragnarsson frá Framsóknarflokki og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir frá Sjálfstæðisflokknum.
 
3.
Starfshópur um almenningssamgöngur / Aðalmál.
Málsnúmer 1101197
Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.
Samningar um skipulagðar samgöngur í Fjarðabyggð lagðir fram til kynningar og staðfestingar.  Farið yfir framgang í verkefninu.
Bæjarráð staðfestir samninga fyrir sitt leyti.
 
4.
Vatnsveita Fjarðabyggðar - vatnsból Norðfirði
Málsnúmer 1103156
Við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar vék Jón Björn Hákonarson af fundi.
Tekið til umfjöllunar málefni Guðröðar Hákonarsonar og ágreining um vatnstökuréttindi í Fannardal.  Hilmar Gunnlaugsson lögfræðingur var í símasambandi við fundinn og fór yfir samskipti sín við lögfræðing Guðröðar.  Mannvirkjastjóri sat jafnframt fundinn.
5.
Endurgreiðsla á VSK fyrir Hitaveitu Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1101028
Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.
Lögð fram drög að bréfi til fjármálaráðuneytisins vegna endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna húshitunar á dreifisvæði Hitaveitu Eskifjarðar og kynnt áætlanir um framhald málsins.
Bæjarráð samþykkir efni bréfsins og felur mannvirkjastjóra að vinna það áfram.
6.
Opnunartími leikskóla
Málsnúmer 1201005
Lagt fram bréf frá Vinnumarkaðsráði Austurlands um opnunartíma leikskóla.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindi til fræðslu- og frístundanefndar.
7.
Stofnfjáreigendafundur 19.janúar 2012
Málsnúmer 1201053
Boðað er til stofnfjáreigendafundar í Sparisjóði Norðfjarðar 19.1.2012.
Bæjarráð samþykkir að fela Jóni Birni Hákonarsyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinn.
8.
NORA ansøgning - Communities for change
Málsnúmer 1201020
Lagt fram minnisblað og fundarboð vegna samstarfsverkefnis Communities for change.  Boðað er til upphafsfundar í verkefni 24. janúar 2011.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar til umfjöllunar.
Fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum verður bæjarritari.
9.
Vinabæjarsamskipti á norðurlöndum
Málsnúmer 0907052
Lögð fram greinargerð bæjarritara um vinabæjarsamskipti milli Esbjerg, Stavanger, Jyväskylä, Eskilstuna og og útfærslu þeirra.
Bæjarráð felur bæjarritara að vinna áfram að málinu.
10.
Reglur um liðveislu og eyðublað 2011
Málsnúmer 1102013
Þennan lið dagskrár sat félagsmálastjóri.
Lagt fram minnisblað um nýjar reglur fyrir liðveislu og farið yfir þær.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
11.
Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Málsnúmer 1110202
Lögð fram til kynningar greining á framlögum Atvinnuþróunarsjóðs til Fjarðabyggðar síðustu ár.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
 
12.
Nýjir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1106064
Yfirlit yfir aðflutta og brottflutta í Fjarðabyggð á tímabilinum 2.12.2010 til 1. júní 2011 lagt fram til kynningar.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
13.
Hafnarstjórn - 93
Málsnúmer 1112012F
Fundargerð lögð fram til umræðu og kynningar.
14.
Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði
Málsnúmer 1201079
Bæjarstjóri lagði fram til kynningar tilkynningu frá Löxum ehf sem fyrirtækið hefur sent Skipulagsstofnun.
Bæjarráð vísar máli til kynningar í atvinnu- og menningarnefnd, hafnarstjórn og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
15.
Fjárhagsáætlun 2012
Málsnúmer 1108029
Kynning á fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2012 verður 18. janúar n.k. á Fáskrúðsfirði og 17. janúar n.k. í Neskaupstað.  Fundirnir eru í skólunum og hefjast kl. 20:00.