Fara í efni

Bæjarráð

295. fundur
21. maí 2012 kl. 20:00 - 22:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bréf til bæjarráðs varðandi sjávarútvegsauglýsingar
Málsnúmer 1205074
Fram lagðir tölvupóstar Árna Einarssonar og Sigurðar E Einarssonar varðandi auglýsingar um sjávarútveg.
Bæjarráð vísar í bókun sína frá fundi sem segir:

Bæjarráð áréttar í ljósi undangenginnar umræðu að sveitarfélagið kemur ekki fjárhagslega né hefur frumkvæði að þeim auglýsingum sem birst hafa undanfarið í fjölmiðlum. Bæjarráð vill jafnframt árétta að breytingar á lögum um sjávarútvegsmál er mikið hagsmunamál fyrir sveitarfélagið, fyrirtæki og íbúa þess og hefur það meðal annars kostað úttekt KPMG á áhrifum frumvarpanna á Fjarðabyggð. Bæjarráð styður efnislega þær auglýsingar sem fjalla um áhrif frumvarpanna og birtast á landidogmidin.is

 

Þá vill bæjarráð ítreka að það hefur fjallað á fjölmörgum fundum sínum um sjávarútvegsmál og áðurnefnd frumvörp ásamt því að fá um þau hlutlausa úttekt á áhrifum þeirra frá KPMG eins og áður segir. Á grundvelli hennar byggist fyrst og fremst afstaða bæjarráðs enda kemur þar fram hversu veruleg neikvæð áhrif þau hafa á atvinnulíf í sveitarfélaginu.  Á þeim grunni felst efnislegur stuðningur við auglýsingar sem birtast á landiðogmidin.is

2.
Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2012
Málsnúmer 1205009
Fundagerðir stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 3.febrúar og 27.apríl s.l. lagðar fram til kynningar.
Eigna-, skipulags, og umhverfisnefnd tók undir með stjórn Náttúrustofu Austurlands að tekjum að hreindýraleyfum sé ekki skipt sanngjarnt á milli Umhverfisstofnunar og Náttúrustofu. Nefndin telur eðlilegt að öll umsýsla tengd veru hreindýra á Austurlandi sé sinnt af starfsmönnum staðsettum á Austurlandi og hvetur bæjarstjórn til að taka málið upp á sína arma og fylgja því fast eftir.
Bæjarráð tekur heilshugar undir bókun nefndarinnar.
3.
Fundargerðir Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
Málsnúmer 1105100
Fram lögð fundargerð stjórnarfundar Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands frá 4. maí s.l.
4.
Norðfjarðargögn og samgöngur í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1202141
Fram lögð bókun bæjarráðs Fljótsdalshéraðs um stuðning við gerð Norðfjarðarganga.
5.
Ósk um styrk til Golfklúbbs Norðfjarðar
Málsnúmer 1205046

Lagt fram bréf frá Golfklúbbi Norðfjarðar þar sem óskað er eftir styrk á móti álögðum byggingarleyfisgjöldum Fjarðabyggðar.

Bæjarráð samþykkir að veita styrk sem nemur byggingarleyfisgjöldum.  Tekið af liðnum óráðstafað 21-69.
6.
Vatnsveita Fjarðabyggðar Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 2008-03-11-503
Lögð fram tillaga mannvirkjastjóra, um aukafjárveitingu fyrir Vatnsveitu Fjarðabyggðar á Fáskrúðsfirði vegna lagningu á stofnlögn sem verður lögð samhliða lagning háspennustrengs vegna Loðnuvinnslunnar. Um er að ræða hliðrun á fjárfestingu veitunnar í 3ja ára áætlun til ársins 2012 að upphæð 88 milljónir kr. en sparnaður er um 30 miljónir kr. með samnýtingu á skurði.
Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti en viðauki verður lagður fram í bæjarráði þegar endanlegt samkomulag liggur fyrir og honum vísað þá til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Umsögn um mál nr. 762 sparisjóðir.
Málsnúmer 1205063
Til umsagnar frá nefndasviði Alþingis mál. 762 um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki (sparisjóðir).
Jón Björn Hákonarson tók þátt í fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis gegnum síma og greindi hann frá sjónarmiðum sem rædd voru þar.
8.
Sameining Austfirskra stoðstofnana (AST) - fundargerðir og skýrsla
Málsnúmer 1104003
Fram lagður til kynningar tölvupóstur frá Austurbrú vegna starfsloka Björns Hafþórs Guðmundssonar.
Í tilefni af starfslokum vill bæjarráð Fjarðabyggðar færa Birni Hafþóri Guðmundssyni bestu þakkir fyrir það ötula starf sem hann hefur unnið á vettvangi sveitarstjórnarmála á Austurlandi og óskar honum velfarnaðar og alls hins best í framtíðinn.
9.
Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf
Málsnúmer 1104081
Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri. 
Umfjöllun um málið fram haldið frá síðsta fundi. Lagt fram fundarboð aðalfundar Eignarhaldsfélagsins Fasteignar 24. maí n.k. ásamt gögnum sem tengjast fjárhagslegri endurskipulagningu þess og nýjum leigusamningum.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag um fjárhagslega endurskipulagningu Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. á grunni þeirra forsendna sem eru lagðar upp í samkomulagi, gögnum og kynningum frá eignarhaldsfélaginu sem fyrir liggja.  Jafnframt samþykkir bæjarráð drög leigusamninga.  Þá felur bæjarráð bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.  Breytist forsendur fyrir boðaðan hluthafafund verður bæjarráð kallað saman. 
10.
Forkaupsréttarlisti Fjarðabyggðar 2012
Málsnúmer 1201259
Lagður fram uppfærður forkaupslisti Fjarðabyggðar 2012, með áherslum frá fyrri fundi bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir forkaupsréttarlistann fyrir sitt leyti og vísar honumtil afgreiðslu bæjarstjórnar
11.
Ársreikningar 2011 - Hulduhlíð
Málsnúmer 1205059
Ársreikningar Hulduhlíðar vegna ársins 2011 lagðir fram til kynningar. Ársreikningur var staðfestur í félagsmálanefnd þann 14.05. sl. Rekstrarniðurstaða er neikvæð sem nemur um 19.m.kr. Ástæður þess eru einkum tvíþættar: hækkanir lífeyrisskuldbindinga og léleg nýting á rýmum. Ekki eru miklar breytingar á efnahagsreikningum milli ára.
12.
Ársreikningar 2011 - Uppsalir
Málsnúmer 1205060
Ársreikningur Uppsala lagður fram til kynningar.  Ársreikningur var staðfestur í félagsmálanefnd 14.5. s.l. Hækkun er á lífeyrisskuldbindingum á milli ára líkt og í Hulduhlíð en upphæðin nemur um 2.m.kr. Daggjaldatekjur jukust. Mjög góð nýting var bæði á dvalar- og hjúkrunarýmum.
13.
Kjaramál stjórnenda
Málsnúmer 1106183
Bæjarritari vék af fundi.
Bæjarráð samþykkir samningsbundna breytingu á launatöflu stjórnenda.
14.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
Málsnúmer 1201123
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 31 frá 14.05. sl. lögð fram til kynningar.
15.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 42
Málsnúmer 1205007F
Fram lögð til kynningar fundargerð eigna- skipulags og umhverfisnefndar.