Bæjarráð
Framlagt bréf Landsbankans hf. frá 31.maí þar sem óskað er eftir afnotum af húsnæði Félaga eldri borgara á Eskifirði og Fáskrúðsfirði fyrir þjónustu Landsbankans.
Bæjarráð mótmælir efni bréfs Landsbankans þar sem óskað er eftir aðstöðu í húsnæði bæjarins eftir að bankinn hefur lokað útibúum sínum. Bæjarráð hafnar því að húsnæði verði nýtt til almennrar þjónustu fjármálastofnana en Félögum eldri borgara sé frjálst að velja hvaða fjármálastofnun þeir kjósa að taka á móti í húsnæði sem þau hafa til afnota. Bæjarráð telur sig ekki geta hafa afskipti af hvaða þjónustu félögin þiggja í húsnæðinu.
Bæjarráð er á þessum tímapunkti ekki tilbúið til að taka afstöðu til framtíðarnýtingar á húsnæði bankans þar sem hann hefur lagt niður starfsemi sína nýverið.
Framlögð fyrirspurn frá United Cities and Local Governements ( UCLG ) sem eru alþjóðasamtök sveitarfélaga en Samband íslenskra sveitarfélaga er aðili að samtökunum. Samtökin gæta hagsmuna sveitarstjórnarstigsins á alþjóðavettvangi þ.á m. gagnvart Sameinuðu þjóðunum og stofnunum þess. Unnið er að skýrslugerð á vegum samtakanna og leitað er eftir að forsvarsmenn 10 stærstu sveitarfélaganna í landinu svari spurningarlista.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt og svara fyrirspurnum.
Bæjarstjóri lagði fram tillögu ásamt greinargerð um að Indriði Indriðason verði ráðinn sem fjármálastjóri Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra.