Fara í efni

Bæjarráð

306. fundur
3. september 2012 kl. 08:30 - 11:00
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013
Málsnúmer 1208011
Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.
Forsendur fjárfestingaráætlunar fyrir árið 2013 og langtímaáætlunar ræddar.
2.
Endurskoðun á úthlutunarreglum íþróttastyrkja
Málsnúmer 1208066
Fræðslustjóri og forstöðumaður íþrótta- og tómstundamála sátu þennan dagskrárlið fundar.
Farið yfir umræður  fræðslu- og frístundanefndar og áherslur í úthlutun styrkja til æskulýðs- og íþróttamála.
Elvar Jónsson bókar eftirfarandi: Íþrótta og tómstundafulltrúi vinni minnisblað þar sem styrkupphæðir Fjarðabyggðar til íþróttamála er bornar saman við upphæðir í sambærilegum sveitarfélögum. Einnig kallar Elvar eftir því að fulltrúar stórfyrirtækjanna í Fjarðabyggð, sjávarútvegsfyrirtækjanna og Fjarðaráls, verði kallaðir á fund bæjarráðs hið fyrsta þar sem fjármagn til íþróttamála verði til umræðu.
3.
Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands 2012
Málsnúmer 1105180
Fundargerð aðalfundar Þróunarfélagsins ásamt fundargerð stjórnar frá 30. ágúst s.l. lögð fram til kynningar.
4.
Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf
Málsnúmer 1104081
Framlagt samkomulag Fjarðabyggðar og Eignarhaldsfélagsins fasteignar um uppgjör vegna yfirtöku á viðhalds- og endurbótaskyldu fasteigna sem Fjarðabyggð leigir af félaginu.
Bæjarráð samþykkir samkomulagið.
5.
Breytingar á nefndarskipan sjálfstæðisflokks á kjörtímabilinu 2010-2014
Málsnúmer 1204061
Gunnar Ragnar Jónsson hefur sagt sig úr félagsmálanefnd sem varaformaður nefndarinnar.
Sjálfstæðisflokkurinn tilnefnir Láru Björnsdóttir sem aðalmann en hún var varamaður og tilnefnir varamann á næsta fundi bæjarráðs.
6.
Fræðslu- og frístundanefnd - 27
Málsnúmer 1208008F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
7.
Atvinnu- og menningarnefnd - 33
Málsnúmer 1208003F
Fundargerð lögð fram til kynningar.