Fara í efni

Bæjarráð

315. fundur
5. nóvember 2012 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 3
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði
Málsnúmer 1201079
Fram lagt bréf Skipulagsstofunar þar sem óskað er umsagnar um laxeldi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð vísar erindi til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar til umsagnar sem lögð verður fyrir bæjarráð.
2.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013
Málsnúmer 1209090
Bæjarstjórn samþykkti 1.11. s.l.að vísa dagskrárlið til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu.
Fram lögð drög að bréfi til ráðuneytisins um sérstakar reglur Fjarðabyggðar til úthlutunar á byggðakvóta Mjóafjarðar og Stöðvarfjarðar. 
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að bréfi um breytingu á reglum.
3.
Stjórnarfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2012
Málsnúmer 1210184
Fram lögð til kynningar fundargerð stjórnar Skólaskrifstofu Austurlands frá 25. október 2012.
Fundargerð vísað til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd og félagsmálanefnd.
4.
Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2012.
Málsnúmer 1210207
Fram lagt fundarboð aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands sem boðaður er 23. nóvember n.k. kl. á Egilsstöðum.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinn og bæjarritara að vera hans varamaður.
5.
IPA verkefni með áherlu á innflytjendur
Málsnúmer 1210193
Fram lagt minnisblað um þátttöku Fjarðabyggðar í IPA verkefni sem lýtur að innflytjendum. Markmið með verkefninu er að efla þjónustu við innflytjendur.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til bæjarstóra og bæjarritara og þeir meti verkefnið með tilliti til annarra IPA styrkja sem sveitarfélagið er aðili að.  Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
6.
Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál
Málsnúmer 1210103
Bæjarráð vísaði á fundi 314 tilnefningu í samráðshóp Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðsvegna vegna þjónustu við olíuleit á Drekasvæðinu til til fundar.
Bæjarráð samþykkir að samráðshópinn skipi af hálfu Fjarðabyggðar Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri, Steinþór Pétursson framkvæmdastjóri hafna, Björn Ingi Knútsson verkefnastjóri og Sævar Guðjónsson bæjarfulltrúi.
7.
Endurskoðun á úthlutunarreglum íþróttastyrkja
Málsnúmer 1208066
Umræður um styrki til íþróttafélaga.
8.
Aðalfundur HAUST 2012 24.10. á Seyðisfirði
Málsnúmer 1209107
Fram lögð fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands frá 24. október 2012.