Bæjarráð
388. fundur
23. júní 2014
kl.
08:30
-
00:00
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Jens Garðar Helgason
Formaður
Jón Björn Hákonarson
Aðalmaður
Eydís Ásbjörnsdóttir
Aðalmaður
Gunnlaugur Sverrisson
Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson
Bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Framlenging samnings um vátryggingaviðskipti
Jón Björn Hákonarson vék af fundi. Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað um framlengingu á samningi um tryggingarviðskipti við Sjóvá Almennar tryggingar hf. til 31. desember 2015. Bæjarráð samþykkir að framlengja samningi til ársloka 2015 en felur fjármálastjóra að undirbúa útboð á tryggingum sveitarfélagsins þegar samningur rennur út.
2.
Beiðning um stuðning við starf Hróksins í þágu barna og ungmenna á Grænlandi og Íslandi
Bréf Skákfélagsins Hróksins þar sem sveitarfélaginu er boðið að gerast velunnari félagsins, í þágu barna og ungmenna á Grænlandi og Íslandi, með því að gerast gull-, silfur- eða bronsbakhjarl. Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um stuðning við starf Hróksins að þessu sinni.
3.
Sjúkraþjálfun í Íþróttamiðstöð Eskifjarðar
Umsókn um afnot af aðstöðu í Íþróttamiðstöðnni á Eskfirði fyrir sjúkraþjálfun auk minnisblaðs íþrótta- og tómstundafulltrúa. Bæjarráð samþykkkir að leigja aðstöðu í íþróttamiðstöð til eins árs og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að meta árangur af samningi fyrir árslok.
4.
Fasteignamat 2015
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Bréf Þjóðskrár Íslands frá 13.júní, er varðar fasteignamat ársins 2015. Málinu vísað til fjárhagsáætlunar 2015.
5.
Fjármálastjórn Sveitarfélaga
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga frá 12.júní til allra sveitarfélaga um fjármálastjórn sveitarfélaga lagt fram til kynningar. Vísað til fjármálastjóra til skoðunar.
6.
Refaveiðar í sunnanverðum Reyðarfirði 2014
Framlagt bréf Sigurgeirs Jóhannssonar dagsett 10. júní, þar sem hann og Gunnar B. Ólafsson segja sig frá grenjavinnslu í sunnanverðum Reyðarfirði, þar sem þeir telja að ítrekað hafi verið spillt fyrir veiðum, bæði í ár og í fyrra. Tillaga umhverfisstjóra að lausn málsins. Bæjarráð er sammála tillögu umhverfisstjóra og felur honum lausn málsins.
7.
An invitation to the Light in the City event in Eskilstuna
Boð á ráðstefnu í Eskilstuna 23. til 25.október 2014. Bæjarráð þakkar boðið og felur bæjarritara að svara.
8.
Invitation to the Jyväskylä Housing Fair event and twin city programme on 22-24 July 2014
Boð Jyväskylä á kaupstefnu sem haldin veður 23. til 24.júlí 2014. Bæjarráð samþykkir að senda fulltrúa á kaupstefnuna. Forseta bæjarstjórnar falin afgreiðsla málsins.
9.
Tall Ships Race
Framlögð dagskrá vinabæjarmóts sem haldið verður í Esbjerg 1. til 3. ágúst nk. Bæjarráð samþykkir að senda fulltrúa á mótið. Forseta bæjarstjórnar falin afgreiðsla málsins.
10.
Skýrsla með niðurstöðum úttektar á sérfræðiþjónustu í sex sveitarfélögum
Skýrsla með niðurstöðum úttektar á sérfræðiþjónustu í sex sveitarfélögum lögð fram til kynningar og vísað til fræðslunefndar.
11.
Tímabundin breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga
Bréf innanríkisráðuneytisins frá 28.maí lagt fram til kynningar og vísað til fræðslunefndar.
12.
Fundagerðir yfir- og undirkjörnefnda vegna sveitarstjórnarkosninga 2014
Fundargerð yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar frá 10.júní lögð fram.
13.
Aðalfundur SSA 2014
Aðalfundur SSA verður haldinn 19. og 20.september á Vopnafirði. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að senda upplýsingar um fulltrúa um leið og þær liggja fyrir.
14.
Ráðning bæjarstjóra 2014 - 2018
Samningur við Pál Björgvin Guðmundsson um starf bæjarstjóra lagður fram og samþykktur. Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.