Fara í efni

Bæjarráð

501. fundur
12. desember 2016 kl. 08:30 - 10:20
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson Formaður
Jón Björn Hákonarson Varaformaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson Embættismaður
Gunnlaugur Sverrisson Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna
Málsnúmer 1603089
Í framhaldi af vinnu við skoðun á mögulegri staðsetningu hafnarkants í tengslum við nýtt fiskiðjuver Eskju, óskar hafnarstjórn eftir því við bæjarstjórn að hún feli eigna- skipulags- og umhverfisnefnd að hefja vinnu við þær breytingar sem gera þarf á aðal- og deiliskipulagi svæðisins. Í hugmyndinni er gert ráð fyrir 90 metra kanti austast á fyllingunni með stækkunarmöguleika til vesturs um aðra 90 metra. Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
2.
Fiðurfé - drög að samþykkt
Málsnúmer 1609078
Lögð fram drög að samþykkt um fiðurfé utan skipulagðra landbúnaðarsvæða í Fjarðabyggð ásamt minnisblaði umhverfisstjóra.
Eigna-, skipulags- og umhverfissnefnd hefur samþykkt drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu í tveimur umræðum.
3.
Þjónusta í þéttbýli 2016
Málsnúmer 1611111
Lagður fram samningur Vegagerðarinnar og Fjarðabyggðar um þjónustu gatna í þéttbýli sveitarfélagsins Fjarðabyggðar árið 2016.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti og vísað honum til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
4.
Reglur um fjárhagsaðstoð
Málsnúmer 1009112
Félagsmálanefnd hefur yfirfarið reglur um fjárhagsaðstoð og leggur til ákveðnar breytingar á grein 22 sem fjallar um greiðslu sérfræðiaðstoðar. Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
5.
Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum
Málsnúmer 1608100
Félagsmálanefnd hefur tekið til umræðu drög að reglum um sérstakan húsnæðisstuðning. Reglurnar taka mið af leiðbeinandi reglum sambandsins og samþykktum reglum Fjarðabyggðar um sérstakar húsaleigubætur. Félagsmálanefnd hefur samþykkt drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs til frekari umræðu. Bæjarráð felur fjármálastjóra að kostnaðargreina reglurnar og leggja minnisblað fyrir bæjarstjórn. Reglunum vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
6.
Öldungaráð
Málsnúmer 1610001
Fræðslustjóri hefur lagt fyrir félagsmálanefnd drög að samþykkt fyrir Öldungaráð Fjarðabyggðar. Félagsmálanefnd hefur yfirfarið drögin og samþykkt þau með lítilsháttar breytingum og vísar þeim til bæjarráðs til frekari umræðu og staðfestingar. Bæjarráð samþykkir lítilsháttar breytingar á 2.gr. og 3.gr. sbr. umræður á fundinum. Samþykkt fyrir öldungaráð er vísað til samþykktar bæjarstjórnar.
7.
Aðstaða til líkamsræktunar - bréf frá íbúum Breiðabliks
Málsnúmer 1611102
Félagsmálanefnd hefur samþykkt beiðni íbúa í Breiðabliki um aðstöðu til líkamsræktar, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Bæjarráð vísar til fjölskyldusviðs frekari vinnu við dagvist aldraðra í Breiðabliki, í tengslum við samþykkt þessa.
8.
Fundargerðir stjórnar SSA 2016
Málsnúmer 1601213
Fundargerð stjórnar SSA frá 29.nóvember 2016, lögð fram til kynningar.
9.
Skólamáltíðir í leik- og grunnskólum í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1611106
Fræðslunefnd tók til umræðu á síðasta fundi, fyrirkomulag á skólamáltíðum í skólum Fjarðabyggðar. Meðal annars var rætt hvort samræma ætti matseðla, hvort og hvernig yrði staðið að útboði á skólamáltíðum í grunnskólum. Fræðslunefnd lagði til að matseðlar verði samræmdir og þá litið til Akureyrar sem fyrirmyndar. Fræðslunefnd lagði jafnframt til að skólamáltíðir í grunnskólunum á Stöðvarfirði, Reyðarfirði, Eskifirði og Norðfirði verði boðnar út ásamt ávaxtanesti í vor. Bæjarráð felur fjármálastjóra og fræðslustjóra að vinna útboðsgögn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
10.
Jólasjóður
Málsnúmer 1311103
Fjarðabyggð mun ekki senda út hefðbundið jólakort á þessu ári og nýtir fjármagn til eflingar jólasjóðsins.
11.
Fjárlagafrumvarp 2016
Málsnúmer 1612049
Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir áhyggjum af skertu framlagi til margra ríkisstofnana og verkefna á Austurlandi sem koma fram í boðuðu fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2017. Bæjarráð heitir á þingmenn kjördæmisins að þeir komi að því að leiðrétta hlut Austurlands í útgjöldum ríkisins í frumvarpinu og tryggja eðlilegan rekstur ríkisstofnana.
12.
Frá UT-deginum-Nýjar persónuverndarreglur o.fl.
Málsnúmer 1612047
Unnið er að skoðun á framsetningu og aðgangi á persónugreinarlegum upplýsingum í Mentor. Vakin er athygli á gildistöku nýrra laga um persónuvernd. Lagt fram til kynningar.
13.
Samningur um þjónustu við Netorku - framlenging til 5 ára
Málsnúmer 1612056
Framlögð drög að samningi við Netorku um framlengingu samnings frá 25. apríl 2007 til fimm ára. Samningur liggur fyrir fundi í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd síðar í dag. Bæjarráð samþykkir samning fyrir sitt leyti.
14.
Raforkukaup Rafveitu Reyðarfjarðar 2017
Málsnúmer 1611018
Framlögð drög að samningum um orkukaup Rafveitu Reyðarfjarðar af Landsvirkjun. Samningur liggur fyrir fundi í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd síðar í dag. Bæjarráð samþykkir samning fyrir sitt leyti.
15.
Ósk um aðild að rekstrar- og uppbyggingarsamning
Málsnúmer 1611084
Fyrir liggur beiðni frá Sjósportklúbbi Austurlands sem óskar eftir að gerast aðili að rekstrar- og uppbyggingarsamningum Fjarðabyggðar. Íþrótta- og tómstundanefnd hitti forsvarsmenn Sjósportklúbbsins sem kynntu fyrir nefndinni starfsemi félagsins. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, aðkomu Sjósportklúbbs Austurlands að rekstrar- og uppbyggingarsamningum Fjarðabyggðar og vísar málinu til bæjarráðs. Bæjarráð tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra að fara yfir málið fyrir næsta fund.
16.
Húsnæðisáætlanir,stofnframlög og skyldur sveitarfélaga gagnvart fötluðu fólki
Málsnúmer 1612051
Þroskahjálp vekur athygli á skyldum sveitarfélaga gagnvart fötluðu fólki. Lagt fram til kynningar og vísað til félagsmálanefndar.
17.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 162
Málsnúmer 1612003F
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 162 frá 5.desember 2016, lögð fram til kynningar.
17.1 Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar
17.2 Tré til nytja
17.3 Fiðurfé - drög að samþykkt
17.4 Beiðni um styrk vegna samstarfsverkefnisins"Bændur græða landið" á árinu 2016
17.5 Lagfæring á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar
17.6 Efnistaka í Reyðarfirði
17.7 Þjónusta í þéttbýli 2016
17.8 Kynning á tillögu að kerfisáætlun 2016-2025 og umhverfisskýrslu
17.9 Svæðisskipulag fyrir Austurland
17.10 Framboð á lóððum vegna uppbyggingar almennra íbúða
17.11 750 Hafnarsvæði - byggingarleyfi
17.12 740 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting - stækkun reits O5 á Kirkjubólseyrum í Norðfirð
17.13 740 - Deiliskipulag Kirkjuból, hesthúsa og búfjársvæði
17.14 735 - Deiliskipulag Hlíðarenda
17.15 740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar
17.16 755 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting, þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I1
17.17 750 Skólavegur 14 - Framkvæmdir á lóðmörkum
18.
Hafnarstjórn - 170
Málsnúmer 1612001F
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 170 frá 5.desember 2016, lögð fram til kynningar.
18.1 Fundargerðir CI á árinu 2016
18.2 Sölusýning skemmtiferðaskipa á Miami 13. til 16. mars 2017
18.3 Sölusýning skemmtiferðaskipa í Hamborg 6. til 8. september 2017
18.4 Hafnargjöld - smábatahöfnin á Eskifirði
18.5 Efnistaka í Reyðarfirði
18.6 Beiðni um stöðuleyfi fyrir bátadælu á bæjarbryggju á Fáskrúðsfirði
18.7 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna
18.8 Umsókn um leyfi fyrir forðatanki utan lýsisþróar á Fáskrúðsfirði
18.9 Ósk um lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði
18.10 Olíubirgðastöð í Reyðarfirði
19.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 30
Málsnúmer 1611017F
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 30 frá 8. desember 2016, lögð fram til kynningar.
19.1 Ósk um aðild að rekstrar- og uppbyggingarsamning
19.2 Vinna við forvarnir fyrir árið 2017
19.3 Heilsueflandi samfélag - Fjarðabyggð
19.4 Íþróttamaður Fjarðabyggðar 2016
20.
Menningar- og safnanefnd - 28
Málsnúmer 1612005F
Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 28 frá 8. desember 2016, lögð fram til kynningar.
20.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - Menningar- og safnanefnd
20.2 Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2016
20.3 Menningarmiðstöðvar á Austurlandi
20.4 Gjaldskrá minjasafna 2017
20.5 Ósk um afnot af Valhöll þann 26.desember
20.6 Uppbygging sýningarsvæðis í útbæ Eskifjarðar
20.7 Uppbyggingarsjóður Austurlands - breyttar úthlutunarreglur og leiðbeiningar
21.
Félagsmálanefnd - 90
Málsnúmer 1611016F
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 90 frá 6.desember 2016, lögð fram til kynningar.
21.1 Aðstaða til líkamsræktunar - bréf frá íbúum Breiðabliks
21.3 Félagsleg íbúð fyrir tímabundna neyðarvistun
21.4 Vinna við forvarnir fyrir árið 2017
21.5 Gagnaöflun jafnréttisstofu um stöðu og þróun jafnréttismála hjá sveitarfélögum
21.6 Öldungaráð
21.7 Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum
21.8 Reglur um fjárhagsaðstoð
21.9 Málefni flóttafólks 2015
21.10 Framtíðarskipan húsnæðismála
22.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2016
Málsnúmer 1603122
Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 69 frá 7.desember 2016, lögð fram til kynningar.