Fara í efni

Bæjarráð

629. fundur
6. september 2019 kl. 08:30 - 10:45
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Eydís Ásbjörnsdóttir formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki 5
Málsnúmer 1909026
Framlagður viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2019. Viðaukinn er til að mæta viðhaldskostnaði og endurbótum á hjúkrunarheimilinu Uppsalir á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð vísar viðauka til staðfestingar bæjarstjórnar.
2.
750 Hafnargata 1 - umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 1905043
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd bréfi Elis B. Eiríkssonar f.h. Loðnuvinnslunnar hf., dagsett 30. ágúst 2019, vegna útreiknings gatnagerðargjalda. Óskað er eftir að álagning gatnagerðargjalda skoðuð sérstaklega, t.d. með vísan til atvinnuuppbyggingar samkvæmt 6. gr. gjaldskrár gatnagerðargjalda. Þá er einnig bent á að í 12. gr. gjaldskrár gatnagerðargjalda eru tilgreind veruleg afsláttarkjör sem eflaust gætu átt við í þessu tilfelli. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að gatnagerðargjald er reiknað út samkvæmt nýtingarhlutfalli lóðar óháð byggingarkostnaði.
Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um afslátt af gatnagerðargjöldum, sbr. 5. og 6. gr. gjaldskrár fyrir gatnagerðargjöld í Fjarðabyggð.
3.
Forkaupsréttur - Guðrún Þorkelsdóttir ehf
Málsnúmer 1909036
Framlagt bréf Guðrúnar Þorkelsdóttur ehf. þar sem Fjarðabyggð er boðinn forkaupsréttur að Hafdísi SU 220, skipaskrárnúmer 2400.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að Hafdísi SU-220, skipaskrárnúmer 2400.
4.
Stefnumótunarfundur SSKS
Málsnúmer 1909037
Framlagt bréf stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum þar sem boðað er til stefnumótunarfundar 17. september nk. í Vestmannaeyjum.
Bæjarráð sendir ekki fulltrúa á fundinn að þessu sinni en óskar eftir að niðurstöður fundar verði sendar aðildarsveitarfélögum og teknar fyrir á aðalfundi samtakanna.
5.
Aðstaða til leigu í Stefánslaug
Málsnúmer 1909020
Framlögð beiðni Vilborgar Stefánsdóttur um að fá leigða aðstöðu undir sjúkraþjálfun í húsnæði Stefánslaugar í Neskaupstað. Um er að ræða herbergi á jarðhæð sem merkt er starfsfólki en er einungis notað sem geymsla.
Bæjarráð felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að meta aðstæður í húsnæði til leigu þess og nýtingar fyrir starfsemi í samráði við forstöðumann miðstöðvarinnar.
6.
Framkvæmdir við Bakkabúðina í Neskaupstað
Málsnúmer 1909029
Framlagt bréf Þorvaldar Einarssonar um leikvöll við Bakkabúðina í Neskaupstað og uppbyggingu leikvalla.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur látið vinna skýrslu um opin leiksvæði í Fjarðabyggð sem unnið er eftir sem stefnu Fjarðabyggðar til framtíðar í málaflokknum. Í þeirri skýrslu er áðurnefnt leiksvæði aflagt en leiksvæði að Sæbakka byggt upp í stað þess.
7.
Málefni aldraðs og fatlaðs fólks
Málsnúmer 1909041
Framlögð drög erindisbréfs starfshóps sem falið er að fjalla um málefni aldraðra og fatlaðra hvað varðar búsetuform og þjónustu.
Bæjarráð fór yfir gögn og felur bæjarritara að vinna að þeim fram að næsta fundi bæjarráðs en þá verður erindisbréf staðfest.
8.
Haustþing 2019 11.-12.október
Málsnúmer 1906055
Framlögð drög að ályktunum til umfjöllunar til undirbúnings aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
Lagt fram til kynningar og tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs
9.
Gerpissvæðið
Málsnúmer 1908066
Á fund bæjarráðs mæta fulltrúar frá friðlýsingateymi Umhverfisstofnunar. Farið yfir framkvæmd friðlýsinga, hvaða tegundir og flokkar friðlýsinga sé um að ræða, samstarf og samvinnu o.s.frv.
Bæjarráð er sammála um að Umhverfisstofnun sé falið að boða fund með landeigendum á Gerpissvæðinu til að kynna áform um friðlýsingu Gerpissvæðis og samstarf í þeim efnum.
10.
Nefndaskipan Miðflokksins
Málsnúmer 1909045
Miðflokkurinn tilnefnir Einar Birgir Kristjánsson sem varamann í stað Helga Freys Ólasonar í íþrótta- og tómstundanefnd.
11.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 240
Málsnúmer 1908005F
Framlögð fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 2. september s.l. til umfjöllunar.
11.1 Verkaefnalisti fyrir Skíðamiðstöðina í Oddskarði
11.2 Umhverfisviðurkenning 2019
11.3 Fjárréttir í Fjarðabyggð
11.4 Efnistaka í Hellisfirði í Norðurfjarðarflóa, Fjarðabyggð. Tillaga að matsáætlun - Beiðni um umsögn
11.5 735 Strandgata 13 - Umsókn um stöðuleyfi
11.6 730 Nesbraut 6 - umsókn um stöðuleyfi
11.7 730 - Búðareyri 25, umsókn um stöðuleyfi fyrir gám
11.8 735 Strandgata 46b - umsókn um lóð
11.9 740 Bakkavegur 5 - umsókn um stækkun lóðar
11.10 735 Dalbraut 4 - Beiðni um að aðveitustöð verði færð
11.11 715 Brekka - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir ljósleiðara og rafstreng
11.12 740 Naustahvammur 49 - Sjótaka fyrir vatnsúðakerfi
11.13 Lagning ökutækja við Strandgötu Eskifirði
11.14 750 Hafnargata 1 - msókn um stöðuleyfi
11.15 Landbúnaðarnefnd - 24
12.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 63
Málsnúmer 1908010F
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 4. september sl. lögð fram til umfjöllunar.
12.1 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefnd haust 2019
12.2 Handbók starfsmanna Félagsmiðstöðva Fjarðabyggðar
12.3 Erindi starfshóps Ungmennafélagsins Vals um nýtt íþróttahús.
12.4 Stúdenta- og ungmennaskipti milli Fjarðabyggðar (Fáskrúðsfjarðar) og Gravelines
12.5 Sumarnámskeið 2019
12.6 Verkaefnalisti fyrir Skíðamiðstöðina í Oddskarði
12.7 Hlaupa- og hjólabrettagarður á Reyðarfirði
12.8 Bogfimimót í Fjarðarbyggðarhöllinni
12.9 Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu 2020-2022
12.10 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2020