Fara í efni

Bæjarráð

644. fundur
17. desember 2019 kl. 15:00 - 15:50
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Eydís Ásbjörnsdóttir formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Gunnlaugur Sverrisson embættismaður
Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Rafveita Reyðarfjarðar - TRÚNAÐARMÁL
Málsnúmer 1911121
Ákvörðun um sölu Rafveitu Reyðarfjarðar í framhaldi af íbúafundi mánudaginn 16.desember. Lagðir fram tíu tölvupóstar sem borist hafa bæjarfulltrúum og bæjarskrifstofu þar sem mótmælt er fyrirhugaðri sölu Rafveitu Reyðarfjarðar. Ákvörðun um sölu Rafveitu Reyðarfjarðar vísað til bæjarstjórnar.
2.
Aðkoma að sölu á Rafveitu Reyðarfjarðar
Málsnúmer 1912124
Lagt fram bréf Íslenskrar Orkumiðlunar frá 16.desember 2019, þar sem óskað er eftir að fá að gera tilboð í þær eignir Rafveitu Reyðarfjarðar sem ráðgert er að Orkusalan kaupi í tengslum við sölu á Rafveitunni. Bæjarráð getur ekki tekið afstöðu til erindis þessa þar sem það er komið fram eftir að söluverð til Orkusölunnar var ákveðið og birt opinberlega.
3.
435.mál - tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2034
Málsnúmer 1912077
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2024, 434. mál og tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2034, 435. mál. Undirrituð umsögn berist eigi síðar en 10. janúar. Bæjarráð ítrekar fyrri bókun sína um samgönguáætlun.
4.
434.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2024
Málsnúmer 1912076
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2024, 434. mál og tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020 - 2034, 435. mál. Undirrituð umsögn berist eigi síðar en 10. janúar. Bæjarráð ítrekar fyrri bókun sína um samgönguáætlun.
5.
Aukin framleiðsla Laxa ehf á 3.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði-beiðni um umsögn
Málsnúmer 1912106
Lögð fram beiðni Matvælastofnunar um umsögn vegna umsóknar Laxa fiskeldis ehf á 3.000 tonna framleiðslu á lagi í Reyðarfirði. Lagt fram minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra, umhverfisstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna beiðnar Matvælastofnunar dagsett 13. desember 2019.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að svar Fjarðabyggðar verði byggt á niðurstöðu minnisblaðs. Bæjarráð samþykkir framlagða umsögn.
6.
Samningur milli SSA, menningarstofu og Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1912093
Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála um að framlengja ekki núgildandi samningi milli Fjarðabyggðar, SSA og Tónlistarmiðstöðvar Austurlands. Lögð fram til kynningar drög að samningi milli SSA og menningarstofu Fjarðabyggðar. Menningar- og nýsköpunarnefnd hefur samþykkt að nýr samningur verði milli Menningarstofu Fjarðabyggðar og SSA, en óskar eftir að gerðar verði smávægilegar breytingar á efni samnings og felur bæjarráði að ganga frá endanlegum samningi. Menningar- og nýsköpunarnefnd hefur jafnframt falið formanni nefndarinnar, bæjarstjóra og bæjarritara að vinna málið áfram og funda með formanni sóknarnefndar Eskifjarðarkirkju. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning milli SSA og menningarstofu og felur bæjarstjóra undirritun hans.
7.
Hafnarstjórn - 233
Málsnúmer 1912008F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 233 frá 9.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.
7.1 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2019
7.2 Rannsóknir á setþykkt, kóralþörungum og botndýralífi
7.3 Verkefni hafnarsjóðs
7.4 Viðburðir tengdir komu skemmtiferðaskipa 2019
7.5 Umsókn um framkvæmdaleyfi lagnaleiðar milli fiskiðjuvers og fiskimjölsverksmiðju
7.6 Framkvæmdir 2019 - yfirlit frá framkvæmdasviði
8.
Landbúnaðarnefnd - 25
Málsnúmer 1912003F
Fundargerð landbúnaðarnefndar nr. 25 frá 5.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.
8.1 Afréttarmál - Héraðsfé
8.2 Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði
8.3 Endurskoðun fjallskilasamþykktar Múlasýslna
9.
Öldungaráð - 2
Málsnúmer 1911019F
Fundargerð öldungaráðs nr. 2 frá 12.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.
9.1 Heilsuefling 65 ára og eldri í Fjarðabyggð
9.2 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
9.3 Starfsáætlun öldungaráðs 2020
10.
Menningar- og nýsköpunarnefnd - 20
Málsnúmer 1912005F
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 20 frá 16.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.
10.1 Gamla sýningarvélin og önnur tæki í Valhöll Eskifirði
10.2 Beiðni um aukafjárveitingu til bókasafnanna í Fjarðabyggð
10.3 Beiðni um styrk í formi leigkostnaðar - Valhöll
10.4 Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2019
10.5 20.fundur sjálfseignarstofnunar um safn Jósafats Hinrikssonar
10.6 Styrkbeiðni frá Leikfélaginu Djúpinu
10.7 Stefnumótun í ferðaþjónustu
10.8 Samningur milli SSA, menningarstofu og Fjarðabyggðar
10.9 Safnanefnd - 13
11.
Safnanefnd - 13
Málsnúmer 1911021F
Fundargerð safnanefndar nr. 13 frá 27.nóvember 2019, lögð fram til umfjöllunar.
11.1 Fyrirhuguð uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins.
11.2 Tillaga um samstarf og vörslu stríðsminja
11.3 Sumaropnun í bókasöfnum Fjarðabyggðar, sumarið 2020
11.4 Málefni Gauta
11.5 20.fundur sjálfseignarstofnunar um safn Jósafats Hinrikssonar
12.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 249
Málsnúmer 1912012F
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 249 frá 16.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.
12.1 Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar
12.2 Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði
12.3 Verkefnastyrkir á vegum umhverfis- og auðlindamála
12.4 Aukin framleiðsla Laxa ehf á 3.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði-beiðni um umsögn
12.5 436.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum (viðaukar)
12.6 735 Dalbraut 4 - Undirskriftarlisti, áskorun um færslu á tengivirki
12.7 Trúnaðarmál - erindi frá íbúa
12.8 Kvöð um aldursmörk Melgerði 13 Reyðarfirði
12.9 730 Mjóeyrarhöfn - Umsókn um stöðuleyfi, starfsmannaaðstaða Eimskips
12.10 Beiðni um framlengingu á stöðuleyfi starfsmannabúða að Haga 2019-2020
12.11 730 Hraun 1 - Umsókn um byggingarleyfi, breyting á gasgeymslu
12.12 730 Fagradalsbraut 2 og 4 - umsókn um sameiningu lóða
12.13 750 Stekkholt 13 - Beiðni um að taka land í fóstur
12.14 735, 740 Dreífbýli - Umsókn um framkvæmdaleyfi, lagning ljósleiðara
12.15 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði
12.16 755 Deiliskipulag Heyklif
12.17 755 Heyklif - breyting á aðalskipulagi, ferðaþjónusta
12.18 Landbúnaðarnefnd - 25
13.
Barnaverndarfundargerðir 2019
Málsnúmer 1902124
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 111 frá 9.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.