Fara í efni

Bæjarráð

668. fundur
22. júní 2020 kl. 09:30 - 11:00
Sólbrekku í Mjóafirði
Nefndarmenn
Eydís Ásbjörnsdóttir formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Fasteignamat 2021
Málsnúmer 2006094
Framlagt yfirlit Þjóðskrár Íslands um breytingar á fasteignamati milli áranna 2020 og 2021 ásamt minnisblaði fjármálastjóra um breytingar í Fjarðabyggð á stofni fasteignamats á milli áranna.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2021.
2.
Fjármál sveitarfélaga í kjölfar Covid-19
Málsnúmer 2005111
Fram lagt bréf Sambands Íslenskra sveitarfélaga er varðar beiðni samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um að álagningarprósentur sveitarfélaga verði lækkaðar sem nemur að lágmarki hækkun fasteignamats milli áranna 2020 og 2021.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2021.
3.
Kauptilboð í Búðareyri 21
Málsnúmer 2006093
Lagt fram kauptilboð í Búðareyri 21 en fasteignin er hluti af áhaldahúsaeigninni á Reyðarfirði.
Bæjarráð hafnar tilboði en eignir eru seldar saman.
4.
Endurnýjun húsnæðis Uppsala
Málsnúmer 1904082
Framlagt svar heilbrigðisráðuneytis vegna beiðnar frá því í október 2019, um framlag til endurbóta á Uppsölum. Beiðni um framlag til endurbóta er hafnað af hálfu ráðuneytisins.
Bæjarráð vísar erindi til umfjöllunar framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna. Jafnframt áréttar bæjarráð að það var ekki að óska leiðbeininga ráðuneytisins heldur var óskað svara við spurningum um löngu tímabærar framkvæmdir við hjúkrunarheimilið. Bæjarstjóra falið að senda bréf til heilbrigðisráðherra vegna málsins.
5.
Markaðsátak og sýnileiki 2020
Málsnúmer 2005044
Lagt fram minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra og upplýsingafulltrúa um lykil að Fjarðabyggð sem er útfærsla á verkefni tengt stuðningi við ferðaþjónustu. Gefnir verða út afsláttarmiðar í sundlaugar og söfn sem ferðaþjónustuaðilar framselja viðskiptavinum.
Bæjarráð samþykkir tillögu sem fram kemur í minnisblaðinu. Minnisblaði vísað til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefndar.
6.
Samingur um þjónustu
Málsnúmer 2006071
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd drögum samnings um þjónustu dælubíls. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
7.
Hálendi Austurlands - ályktun aðalfundar Landverndar 2020
Málsnúmer 2006092
Framlögð ályktun aðalfundar Landverndar 6. júní 2020 um vernd hálendis Austurlands til kynningar.
Vísað til kynningar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
8.
Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2020
Málsnúmer 2002033
Fundargerð stjórnar sambandsins nr. 885 frá 12.júní lögð fram til kynningar.
9.
Skipan varafulltrúa í svæðisráð um gerð strandsvæðisskipulags fyrir Austfirði
Málsnúmer 2006108
Bæjarráð skipar Sigurð Ólafsson sem varafulltrúa í stað Eydísar Ásbjörnsdóttur, í svæðisráð um gerð strandsvæðisskipulags fyrir Austfirði.
10.
Hafnarstjórn - 245
Málsnúmer 2006013F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 245 lögð fram til afgreiðslu.
10.1 Verkefni hafnarsjóðs
10.2 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020
10.3 Ósk um leyfi til notkunar vita Fjarðabyggðar
10.4 Beiðni um styrk vegna hátíðahalda á sjómannadaginn 2020
10.5 Umsókn um styrk vegna Franskra daga 2020
10.6 Sorphirða og endurvinnsla á höfnum
10.7 Umsókn um rannsóknarleyfi í Norðfjarðarflóa
10.8 Umsókn um leitarleyfi í Norðfjarðarflóa
10.9 Eskifjarðarhöfn - stækkun
11.
Hafnarstjórn - 246
Málsnúmer 2006014F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 245 lögð fram til afgreiðslu.
11.1 Eskifjarðarhöfn - stækkun
12.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 263
Málsnúmer 2006012F
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 263 lögð fram til afgreiðslu.
12.1 735 - Deiliskipulag, Eskifjörður-miðbær
12.2 740 Naustahvammur 67-69, óveruleg breyting á deiliskipulagi
12.3 Deiliskipulag Hlíðarenda - óveruleg breyting, safnasvæði
12.4 Mánagata 3 - byggingarleyfi, nýb. á bílskúr, breyting úti og á lóð
12.5 715 Mjóafjarðarvegur - byggingarleyfi, niðurrif olíutanks
12.6 730 Hafnargata 1 - byggingarleyfi, uppsetning á skilti
12.7 Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar
12.8 Fólkvangur Neskaupstaðar - styrkfé, hönnun, framkvæmdir
12.9 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
12.10 Uppbygging á æfingasvæði á Eskifirði
12.11 Átak í fráveitumálum
12.12 Samingur um dælubíl og tengda þjónustu
12.13 Snjómokstur í Fjarðabyggð
12.14 Opin leiksvæði í Fjarðabyggð
Bæjarráð óskar Sigurborgu Ingunni Einarsdóttur ljósmóður og hjúkrunarfræðingi innilega til hamingju með heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu, en henni var veittur riddarakross fyrir framlag sitt í þágu heilbrigðisþjónustu í heimabyggð.