Fara í efni

Bæjarráð

670. fundur
6. júlí 2020 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Eydís Ásbjörnsdóttir formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Stefán Aspar Stefánsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Stefán Aspar Stefánsson Stjórnsýslufulltrúi
Dagskrá
1.
Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021
Málsnúmer 2004009
Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020-2021 tekin til síðari umræðu.
Bæjarráð samþykkir í umboði bæjarstjórnar ferðamálastefnu Fjarðabyggðar 2020-2021.
2.
Markaðsátak og sýnileiki 2020
Málsnúmer 2005044
Eydís Ásbjörnsdóttir vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu liðar. Framlagt minnisblað upplýsingafulltrúa um átak sveitarfélagsins í sýnileika og vitund almennings um Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir að farið verði í átakið til samræmis við minnisblaðið. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað og upplýsingafulltrúa falið að gera samning við hlutaðeigandi um framkvæmd verkefnisins.
3.
Fiskeldi í Viðfirði og Hellisfirði
Málsnúmer 2006076
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að vísa til stefnu bæjarstjórnar um nýtingaráætlanir strandsvæða Fjarðabyggðar vegna fyrirspurnar frá Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti um laxeldi í sunnanverðum Norðfjarðarflóa.
Bæjarráð tekur undir bókun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og felur bæjarritara að svara erindinu.
4.
Beiðni blakdeildar Þróttar um fund
Málsnúmer 2006148
Fulltrúar Blakdeildar Þróttar fóru yfir starfsemi deildarinnar og rekstur hennar.
Bæjarráð vísar til íþrótta- og frístundastjóra og formanns íþrótta- og tómstundanefndar að yfirfara reglur um úthlutun styrkja til íþróttafélaga.
5.
Framkvæmdasvið verkefni 2020
Málsnúmer 2003017
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs. Á síðasta fundi nefndarinnar var lagt fram minnisblað framkvæmdasviðs varðandi framkvæmdir ársins 2020. ESU samþykkti að haldið verði áfram með þau verkefni sem eru á áætlun ársins. Bæjarráð vísar til gerðar viðauka.
6.
Fjárhagsáætlun 2020 - viðauki 3
Málsnúmer 2007013
Framlagður viðauki nr. 3 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 um viðbrögð við kórónafaraldrinum, framkvæmdum við; nýjan vatnstank, Egilsbúð, Gamla barnaskóla, Skólamiðstöð Breiðdalsvík, götur, byggingu þjónustumiðstöðva, styrk til Sköpunarmiðstöðvar, kaupum á íþróttastúku, framlögum til hjúkrunarheimila, almannavarna og breytinga á framlögum Jöfnunarsjóðs.

Samandregin hafa þessar breytingar áhrif að rekstrarútgjöld í A hluta hækka nettó um 216,4 m. kr., fjárfestingar í A hluta hækka um 38 m. kr. og eignasala í A hluta hækkar um 30 m. kr. auk þess sem lántaka í A hluta vex um 400 m. kr. Í B hluta hækka fjárfestingar um 243 m. kr. auk þess sem lántaka í B hluta vex um 100 m. kr. Samandregið sjóðsstaða áætluð í lok árs 2020 um 645 m. kr. eftir breytingar. Lántaka Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. hækki um 400 m. kr. í fjárhagsáætlun ársins 2020 og verði 400 m. kr. á árinu 2020. Lántaka Vatnsveitu hækki um 100 m. kr. í fjárhagsáætlun ársins 2020 og verði 200 m. kr. á árinu 2020 Aukin lántaka Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. og Vatnsveitu greiðist í gegnum viðskiptareikning sjóðanna við Aðalsjóð og eigið fé Aðalssjóðs hækki um sömu upphæð.

Bæjarráð samþykkir í umboði bæjarstjórnar viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2020.
7.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 264
Málsnúmer 2006022F
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 29. júní lögð fram til afgreiðslu.
7.1 7.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn
7.2 Fiskeldi í Viðfirði og Hellisfirði
7.3 Framkvæmdasvið verkefni 2020
7.4 Skólavegur framkvæmdir 2019
7.5 Snjómokstur í Fjarðabyggð
7.6 Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði
7.7 740 Naustahvammur 64, óveruleg breyting á deiliskipulagi
7.8 735 Eskifjarðarhöfn - Framkvæmdaleyfi, stækkun
7.9 750 Búðavegur 35 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
7.10 730 Öldugata 3 - byggingarleyfi, íbúðarhús
7.11 740 Tandrastaðir - byggingarleyfi, vatnstankur
7.12 755 Hólaland 22 - byggingarleyfi, breytt aðkoma að lóð
7.13 735 Lambeyrarbraut 3 - byggingarleyfi, endurgerð þaks
7.14 750 Tunguholt - byggingarleyfi, breytt notkun
7.15 730 Bakkagerði 8 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
7.16 730 Óseyri 2 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
7.17 740 Hafnarbraut 24 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
7.18 730 Mánagata 19 - umsókn um stækkun lóðar
7.19 730 Heiðarvegur 10 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
7.20 735 Bleiksárhlíð 57 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
7.21 740 Hafnarbraut 22 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
7.22 Egilsbraut 4 - skjalasafn
7.23 Umsókn um styrk til fornleifaskráningar í Vöðlavík, á Krossanesi og Útsveit
7.24 Hálendi Austurlands - ályktun aðalfundar Landverndar 2020
7.25 Gerð hjólabrautar í Neskaupstað
7.26 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2020
7.27 Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar
8.
Hafnarstjórn - 247
Málsnúmer 2006023F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 30. júní lögð fram til afgreiðslu.
8.1 7.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn
8.2 Ósk um umsögn hafnaryfirvalda
8.3 Eskifjarðarhöfn - stækkun
8.4 Verkefni hafnarsjóðs
8.5 Ársskýrsla Fjarðabyggðarhafna 2019
8.6 Sjávarútvegsráðstefnan 2020
8.7 Lagfæring fjöru utan við Bæjarbryggju - Neskaupstaður